Kosning um fugl ársins 2021 er komin á flug

0
585
Frændurnir Glitbrúsi(t.v) og Himbrimi(t.h). En Himbriminn er einn þeirra fugla sem hægt er að velja sem fugl ársins 2021. Mynd Brynjúlfur Brynjólfsson

Fuglar eru hluti af daglegu lífi fólks, flestir eiga sinn uppáhalds fugl og hverjum þykir sinn fugl fagur.
Í vetur hafa staðfuglar og vetrargestir glatt okkur með nærveru sinni en nú nálgast vorið og farfuglarnir fara að tínast til okkar á eyjunni fögru. Fuglavernd ætlar að fagna vorkomunni með kosningu á Fugli ársins 2021 og verður sigurvegarinn kynntur með fjaðrafoki og látum á Sumardaginn fyrsta.
Búið er að tilnefna 20 fugla sem eru í framboði fyrir kosninguna, sem er nú í gangi og stendur til 18. apríl.
Keppnin er haldin til að vekja athygli á málefnum fugla í gamni og alvöru og er stefnt að því að hún verði árviss viðburður.
Atkvæði eru tekin að streyma inn eins og farfuglar að vori og er strax ljóst að um spennandi kosningu verður að ræða.
Þeir 20 fuglar sem keppa um titilinn í ár hafa allir orðið sér úti um kosningastjóra. Það er fjölbreyttur og fagur hópur fólks úr öllum áttum og á öllum aldri sem hefur tekið að sér að stýra oddaflugi hinna fuglanna í keppninni. Margir hafa komið upp samfélagsmiðlasíðum fyrir fuglana sína sem Fuglavernd hvetur fólk eindregið til að fylgja.
Á vefsíðu keppninnar á www.fuglavernd.is má finna upplýsingar um keppendur, kosninga­kerfið og hlekk á kosningaeyðublað. Þar er einnig að finna upplýsingar um kosningastjóra fuglanna og hlekki á samfélagsmiðlasíðurnar sem þeir nota.
Kosningin stendur til kl. 18:00 þann 18. apríl næstkomandi og eru fuglavinir hvattir til að taka þátt og gefa sínum fugli byr undir báða vængi.