Í dag, 16. maí 2026, fara fram sveitarstjórnarkosningar í Sveitarfélaginu Hornafirði og hvetjum við alla íbúa 18 ára og eldri til að nýta atkvæðisrétt sinn og taka þátt í að móta framtíð samfélagsins.

Auglýsing

Kosið verður á fjórum stöðum í sveitarfélaginu:
Kjördeild I, Öræfi, Hofgarður, opið frá kl. 10:00 til 18:00
Kjördeild II, Suðursveit, Hrollaugsstaðir, opið frá kl. 10:00 til 18:00
Kjördeild III, Mýrar, Holt, opið frá kl. 10:00 til 18:00
Kjördeild V, Höfn, Heppuskóli, opið frá kl. 9:00 til 19:00

Á undanförnum vikum og mánuðum hafa framboðin birt greinar í Eystrahorni. Allar greinar tengdar kosningunum má finna á vef Eystrahorns hér: Sveitarstjórnarkosningar 2026 á Eystrahorn.is

Framboð í kosningunum eru eftirfarandi (smellið á nöfnin til að finna heimasíðu hvers framboðs):
X-B: Framsókn og stuðningsmenn, www.leidarhofdi.is
X-M: Miðflokkurinn í Hornafirði, www.xmhornafjordur.is
X-D: Sjálfstæðisflokkur, www.xdhornafjordur.is
X-K: KEX framboð, www.xkex.is

Nánari upplýsingar um kosningarnar í Sveitarfélaginu Hornafirði má finna á vef sveitarfélagsins: www.hornafjordur.is/stjornsysla/sveitarfelagid/frettasafn/sveitarstjornarkosningar-16.-mai-2026

Eystrahorn hvetur fólk sem er að deila myndum frá kosningadeginum á samfélagsmiðlum að merkja/tagga Eystrahorn. Það geta verið myndir af fólki á leið að kjósa, kosningakaffi framboðanna eða öðrum skemmtilegum augnablikum úr samfélaginu í dag. @eystrahorn

Tags: