Í dag, 18. maí, er Alþjóðlegi safnadagurinn. Af því tilefni býður Byggðasafn Austur-Skaftafellssýslu gestum að kíkja bakvið tjöldin og heimsækja safngeymslurnar í Álaleiru, þar sem stærstur hluti safnkostsins er varðveittur.

Auglýsing

Þar gefst einstakt tækifæri til að sjá muni sem venjulega eru ekki til sýnis og fræðast um hvernig safnið varðveitir gripi sína.

Athugið að röng tímasetning rataði í Eystrahorn vegna misskilnings. Rétt dagskrá er eftirfarandi:
Safngeymslur í Álaleiru verða opnar í dag 18. maí, frá kl. 16:00 til 18:00.
Klukkan 18:00 verður farið yfir í Gömlubúð.
Klukkan 18:15 hefst leiðsögn um sýninguna „Út úr geymslunni“, þar sem valdir gripir úr safneigninni eru til sýnis.

Byggðasafnið hlakkar til að taka á móti gestum og fagna Alþjóðlega safnadeginum saman.

Sjá viðburð á facebook síðu Byggðasafnsins hér.

Tags: