Kiwanis afhendir reiðhjólahjálma

0
669
Grétar, Jón Áki og Sigurður Einar ásamt krökkunum í 1.bekk.

Þann 28. maí fór fram afhending reiðhjólahjálma til 1. bekkinga Grunn­skóla Hornafjarðar.
Kiwanisfélagarnir Jón Áki Bjarnason forseti Kiwanisklúbbsins Óss og umdæmisritari Sigurður Einar Sigurðsson félagi í Ós mættu og dreifðu hjálmunum. Með í för var Grétar Þorkelsson lögreglumaður sem útskýrði fyrir börnunum öryggi þess að nota hjálm. En öllu starfi hjá Ós hefur seinkað eða verið frestað vegna Covid-19 en allt horfir nú vonandi til betri vegar.
Jón Áki sagði stuttlega frá Kiwanis og umdæmis­styrktarverkefnum, meðal annars í hvað ágóði af K-deginum færi í en það er BUGL og Pieta samtökin sem hafa fengið ágóða af söfnun K-dagsins. En allt gengur þetta út á „að hjálpa börnum heims“.
Hjálmaverkefnið er árlegt verkefni hjá Kiwanisumdæminu Ísland-Færeyjar og er unnið í nánu samstarfi við Eimskip sem helsti stuðningsaðili þess. Markmið hjálmaverkefnis Kiwanis hefur frá upphafi verið að stuðla að öryggi barna í umferðinni með því að gefa nemendum í 1.bekk reiðhjólahjálma.
Bæta þannig öryggi þeirra í umferðinni og koma í veg fyrir alvarleg slys og óhöpp. Hjálmarnir nýtast einnig vel við notkun hjólabretta og hjólaskauta.
Að endingu hvetjum við konur í sveitarfélaginu að vera með í undirbúningshópi um stofnun kvennaklúbbs hér í Hornafirði. Hægt er að biðja um að vera með í Facebook hópnum „Konur í Kiwanis Hornafirði“ eða senda póst á seinars@kiwanis.is