Í tilefni sjómannadagsins hafði Eystrahorn samband við Sidda Árna, Elvar og Sævar og fékk þá til að svara nokkrum léttum spurningum um sjómennskuna, félagsskapinn, fjarveru frá fjölskyldunni, eftirminnileg atvik og hvort kaffi eða orkudrykkur verði fyrir valinu á sjó.
Siddi Árna

Á hvaða bát ert þú?
Ég er á Skinney SF-20 sem gerð er út frá Höfn.
Hversu lengi hefur þú verið á sjó?
Um það bil 30 ár, sautján af þeim sem kokkur á Skinney.
Hvað finnst þér skemmtilegast við sjómennskuna?
Sjómennskan hefur upp á ýmislegt að bjóða, til dæmis góðan félagsskap, góð frí og yfirleitt gott kaup.
Hvað er erfiðast við starfið?
Fjarvera frá fjölskyldunni er líklega það erfiðasta.
Áttu einhverja sérstaklega eftirminnilega sjóferð eða atvik?
Já, á mínum fyrstu árum sem sjómaður var ég á bát með afa mínum ásamt öðrum og vorum við á lúðulínu á Reykjaneshrygg í brjáluðu veðri. Talstöðin var biluð um borð og ekki var hægt að hafa samband í land.
Á þessum tíma var pabbi minn að vinna hjá Tilkynningarskyldunni svokölluðu, sem sá um eftirlit með skipum og bátum við landið, og hann þurfti sem sagt að stjórna leit að pabba sínum og syni eina nótt og fram á næsta dag, þegar við komum fram.
Þessi saga er í einni Útkallsbókinni eftir Óttar Sveinsson. Sennilega reyndi þessi nótt mikið meira á pabba heldur en okkur. Ég hélt allavega að allt væri bara eðlilegt þangað til ég heyrði í flugvél Landhelgisgæslunnar sveima yfir okkur þegar við vorum að verða komnir í land.
Hvað finnst þér best við að koma í land aftur?
Að hitta fjölskyldu og vini. Oft er maður líka búinn að plana eitthvað sem stendur til allan tímann sem maður er á sjó.
Kaffi eða orkudrykkur á sjó?
Kaffi hjá mér. Ég hef aldrei komist upp á lag með orkudrykki.
Elvar Unnsteinsson

Á hvaða bát ert þú?
Erni SF-70.
Hversu lengi hefur þú verið á sjó?
Ég var fyrst skráður 1979, þannig að það styttist í hálfa öld.
Hvað finnst þér best við sjómennskuna?
Góður félagsskapur, líka þegar ég er einn á bátnum.
Hvað er erfiðast við starfið?
Það gat verið krefjandi að ferðast í mikilli þoku. Það hefur lagast mikið með betri græjum.
Hver er besti maturinn á sjó?
Í minningunni var alltaf stemmari að halda humarveislu á humarbát.
Hvað gerir þú fyrst þegar þú kemur í land?
Fer í sund.
Hvernig heldur áhöfnin uppi stemningunni?
Verandi aleinn á bátnum, þá er það helst að spjalla við múkkana.
Orkudrykkir eða kaffi?
Kaffi.
Sævar Knútur Hannesson

Á hvaða bát ert þú?
Ég er á Ásgrími Halldórssyni og svo á ég smábátinn Sigurbjörgu með pabba.
Hversu lengi hefur þú verið á sjó?
Ég hef verið fastráðinn síðan 2017 en var í sumarafleysingum frá 2011 fram að því.
Hvað finnst þér skemmtilegast við sjómennskuna?
Það er fjölbreytnin og svo vinnufélagarnir sem hafa mikið að segja.
Hvað er erfiðast við starfið?
Það er fjarveran frá fjölskyldunni.
Áttu einhverja sérstaklega eftirminnilega sjóferð eða atvik?
Já, það eru nokkrar eftirminnilegar ferðir, til dæmis þegar ég kíkti aðeins upp á sker hjá Djúpavogi á trillunni. Einnig hef ég tekið smá sundsprett á henni og margt fleira.
Það var líka nokkuð eftirminnilegt þegar við slitum allt aftan úr á Ásgrími fyrir tveimur árum og þurftum að slæða það upp ásamt hlerunum. Allt hafðist það og gekk vel.
Hvað finnst þér best við að koma í land aftur?
Það er klárlega að koma heim til sín.
Kaffi eða orkudrykkur á sjó?
Kaffi og þá sérstaklega í brúsa. Finnst þetta baunadót ekkert spes, en maður fær sér einn og einn orkudrykk inn á milli.




