
Kvikmyndin Ástin sem eftir er hlaut sjö Edduverðlaun á hátíðlegri verðlaunaafhendingu í Gullhömrum í Reykjavík á föstudagskvöld. Myndin var valin kvikmynd ársins og Hlynur Pálmason hlaut sjálfur þrenn verðlaun, fyrir handrit ársins, leikstjórn ársins og kvikmyndatöku ársins.
Aðspurður hvað viðurkenningin þýði fyrir hann persónulega segir Hlynur: „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir mig að þessar myndir sem við erum að gera verði sýnilegar í heiminum, svo fólk horfi á þær. Það er líka mikilvægt að myndinni gangi vel því það gefur henni aukinn vind í seglin til þess að fara í næsta verkefni saman og fjármagna þau.”
„Ég er ánægðastur með að við erum búin að finna leið til að búa til persónulegar og stórar kvikmyndir hér á Hornafirði. Að við getum fjármagnað verkefni og fengið fólk til að koma til okkar og vinna, að það sé möguleiki, er mjög magnað“ segir hann.
Fjölskyldan átti einnig stóra stund á verðlaunahátíðinni, því dóttir Hlyns og Hildar Ýrar, Ída Mekkín Hlynsdóttir, hlaut verðlaun sem leikkona ársins í aukahlutverki fyrir leik sinn í kvikmyndinni.




„Ég og Hildur vildum mest að Ída Mekkín myndi vinna af öllum þessum verðlaunum, svo við vorum kampakát þegar nafnið hennar var lesið upp. Þetta var ótrúlega skemmtilegt kvöld þar sem ég, Ída og Hildur dönsuðum langt fram á nótt, bara svaka stuð“ segir Hlynur.
Aðspurður hvað sé fram undan segir Hlynur að þau vinni nú að Á landi og sjó, stærsta verkefni þeirra fyrir austan til þessa, sem hann lýsir sem upprunasögu Hornafjarðar. Verkefnið fjallar um það hvernig Hornafjörður varð til, með Ottó kaupmann hinum megin við fjallið í Papósi, sem pakkaði saman húsinu sínu, breytti því í fleka og fleytti því inn í Hornafjörð þar sem bærinn er núna. Tökur á verkefninu hafa staðið yfir í eitt ár og fram undan er annað ár í tökum. „Þetta er gríðarlega spennandi verkefni“ segir Hlynur.
Hann segir að ómögulegt væri að vinna verkefni af þessu tagi nema með hjálp fólksins í kringum þau og Hornfirðinga.
„Þeir eru gríðarlega margir sem hafa hjálpað og ég vil sérstaklega þakka Hornfirðingum og fólkinu í sveitunum í kring fyrir stuðninginn. Það er alltaf verið að hjálpa okkur á einhvern hátt, hvort sem það er að taka vel á móti leikurum og samstarfsfólki, leigja okkur hús, hjálpa okkur að smíða eitthvað, lána okkur aðstöðu eða leyfa okkur að taka upp á landinu hjá fólki. Við erum afar þakklát fyrir samstarfið“.
Ástin sem eftir er var sú kvikmynd sem hlaut flest verðlaun á Edduverðlaununum að þessu sinni. Auk verðlauna Hlyns og Ídu hlutu Saga Garðarsdóttir og Sverrir Guðnason verðlaun fyrir aðalhlutverk sín í myndinni.
Það er óhætt að segja að kvöldið hafi verið stórt fyrir Hlyn, fjölskyldu hans og alla Hornfirðinga sem fylgst hafa með einstökum ferli hans frá fyrstu myndunum með vinunum á Hornafirði og yfir í stór kvikmyndaverkefni sem nú vekja athygli langt út fyrir landsteinana.




