Íbúafundur um almannavarnir vegna sprungu í Svínafellsheiði

0
1162

Haustið 2014 fannst sprunga ofan Svínafellsjökuls, í norðanverðri hlíðinni milli Skarðatinds og Svarthamra á ofanverðri Svínafellsheiði. Hlíðin á þessum stað er brött og rís um 400 m yfir yfirborð jökulsins. Vorið 2018 uppgötvaðist önnur sprunga sem liggur skáhallt niður vesturhlíð Svínafellsheiðar. Líklegt þykir að þessar sprungur tengist og að þær séu mögulega hluti af sömu sprungunni í berggrunni.
Sveitarfélagið Hornafjörður og Lögreglustjóraembættið á Suðurlandi boða til fundar um almannavarnir vegna sprungunnar í Svínafellsheiði.
Fundurinn verður haldinn 5. nóvember kl. 20:00 í Freysnesi.
Fundarstjóri verður Björn Ingi Jónsson, verkefnastjóri almannavarna.

Dagskrá fundarins:

  • Setning fundar, Kjartan Þorkelsson lögreglustjóri á Suðurlandi.
  • Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
  • Þorsteinn Sæmundsson, jarðfræðingur frá Háskóla Íslands.
  • Magni Hreinn Jónsson hópstjóri ofanflóða frá Veðurstofu Íslands.
  • Jón Kristinn Helgason sérfræðingur á sviði skriðufalla og hættumats frá Veðurstofu Íslands.
  • Tómas Jóhannesson fagstjóri á sviði jöklafræða frá Veðurstofu Íslands.
  • Fyrirspurnir