Fataskiptislá í Nýheimum

0
837

Á dögunum settu starfsmenn Nýheima þekkingarsetur upp fataskiptislá á vesturgangi hússins og býðst starfsmönnum og gestum að taka af og/eða bæta við fatnaði á slána eftir hentugleika. Fataskiptisláin er hluti af verkefninu Umhverfis Suðurland en það er sameiginlegt átak sveitarfélaganna fimmtán á Suðurlandi með Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, SASS, og gengur út á öflugt árvekni- og hreinsunarátak þar sem íbúar, fyrirtæki og sveitarfélög í landshlutanum eru hvött til enn meiri flokkunar og endurvinnslu en nú er.
Sláin tekur ekki mikið pláss en mun eflaust vekja athygli og hvetja til umhugsunar að því sem kemur að fötum og fatasóun en Starfmannafélag Fjölheima á Selfossi setti upp fyrstu slána og er vonin að koma af stað keðju af fataskiptislám meðal fyrirtækja og stofnana á Suðurlandi. Nýheimar skoruðu á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Höfn, HSU, sem hefur þegar sett upp slá. Sláin er á biðstofunni á heilsugæslustöðinni og segir Ester Þorvaldsdóttir að bæði starfsmenn og gestir stöðvarinnar hafi komið með flíkur og farið sælir heim með “nýja” flík. Starfsmenn HSU skora á Leikskólann Sjónarhól að taka við keflinu og setja upp slá og halda keðjunni gangandi. Gaman væri ef önnur fyrirtæki eða stofnanir sýndu frumkvæði og settu upp slá hjá sér. #umhverfissuðurland