Jólablað Eystrahorns kemur út fimmtudaginn 17. desember og því eru rétt fjórar vikur til stefnu. Undirbúningurinn er hafinn og mig langar að fá ykkur lesendur með í að fylla blaðið af skemmtilegu efni.

Ég á góðar jólaminningar frá æskuárunum á Höfn, meðal annars af rúntinum með pabba þegar við bárum út jólakortin. Það var eitthvað svo notalegt við þessar gæðastundir og ég sakna þessa siðar nú þegar margir láta kveðju á samfélagsmiðlum duga.

Hvaða jólaminningar eigið þið? Við leitum að jólasögum, gömlum minningum, uppskriftum, föndurhugmyndum, þrautum og öðru skemmtilegu í jólablaðið. Mig langar líka að heyra af fólki sem væri áhugavert að taka viðtal við og jólahefðum sem gaman væri að segja frá. Það þarf ekki að vera búið að skrifa fullbúna grein, sendið mér línu ef þið hafið hugmynd.

Dæmi um jólakveðju

Það er líka ýmislegt að frétta hjá okkur. Við erum komin með skrifstofuaðstöðu á annarri hæð fyrir ofan AFL og Vaka Sif, dóttir okkar, er farin að aðstoða við blaðið. Hún mun koma að efnisöflun og vefsíðunni og það er mér mikils virði að fá hana með í starfið.

Jólakveðjurnar verða auðvitað á sínum stað og við hvetjum einstaklinga, fjölskyldur, félög og fyrirtæki til að vera með. Við höldum verðinu á staðlaðri jólakveðju óbreyttu frá því í fyrra, 8.900 krónum. Hún er í einföldu jólasniði með stuttum texta og nafni sendanda. Fyrirtæki geta valið þessa leið rétt eins og einstaklingar, en stærri kveðjur með meira rými fyrir merki, myndir eða eigin útfærslu eru í boði samkvæmt verðskrá.

Guðrún og Tjörvi að vinna í jólablaði 2025

Efni, ábendingar og pantanir á jólakveðjum má senda á eystrahorn@eystrahorn.is. Hafið endilega samband tímanlega svo við höfum svigrúm til að vinna efnið og ganga frá blaðinu. Skilafrestur fyrir jólablaðið er 11. desember. Nánari upplýsingar á eystrahorn.is/jolablad.

Ég hlakka til að heyra frá ykkur!

Frá ritstjóra: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir

Tags: