Björgunarfélag Hornafjarðar tekur á móti veglegri gjöf frá Hirðingjunum

Ég vil gjarnan hrósa þeim fyrir góða þjónustu, liðlegheit og gott viðmót. Þær eru að vinna ómetanlegt starf í endurvinnslu, fyrir utan hvað þær vinna skemmtilegt starf fyrir safnara af öllu tagi.

Auglýsing

Eystrahorn vill bæta við að Hirðingjarnir eru, eins og flestir sjálfsagt vita, nytjamarkaður þar sem allur ágóði rennur til góðgerðarmála í heimabyggð. Síðast, þann 2. apríl, gáfu þau eina milljón króna til Björgunarmiðstöðvar Hornafjarðar vegna nýrrar aðstöðu fyrir starfsfólk sjúkrabíla á svæðinu.

Eva Sumarliðadóttir

Tags: