Ég er þakklát félögum mínum í stjórnmálaflokkum sveitarfélagsins fyrir drengilega kosningabaráttu og íbúum fyrir málefnalega umræðu í aðdraganda kosninga. Einnig er ég þakklát fólkinu sem gaf kost á sér í kjörstjórnir þennan dag, þrátt fyrir að seta í kjörstjórn hafi það í för með sér að þau missi af kosningakaffi framboðanna, en það er alltaf gaman að hitta mann og annan í kosningakaffi á kjördag.
Ég er líka þakklát Önnu Maríu á Hótel Skaftafelli sem bauð upp á kosningakaffi, hið fyrsta sem haldið er í Öræfum. Frambjóðendur í Öræfum ætluðu að kaupa af henni kosningakaffi, en þegar kallað var eftir reikningnum vildi hún ekki rukka því hún var svo ánægð með hvað margir Öræfingar tóku sæti á framboðslistum.





