Grænn auðlindagarður í Reykholti í Bláskógabyggð

0
669
Frá undirskrift viljayfirlýsingar: f.v. Knútur Ármann (Friðheimum), Helgi Kjartansson (oddviti Bláskógabyggðar), Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Sveinn Aðalsteinsson (Orkídea), Hildur Ósk Sigurðardóttir (Gufuhlíð) og Axel Sæland (Espiflöt).

Orkídea, samstarfsverkefni um nýsköpun í matvælaframleiðslu og líftækni, skrifaði í vikunni undir viljayfirlýsingu um hagkvæmniskoðun á stofnun Græns auðlindagarðs í Reykholti í Biskupstungum (Bláskógabyggð) með öflugum ylræktarfyrirtækjum og sveitarfélaginu Bláskógabyggð. Ylræktarfyrirtækin eru Espiflöt ehf., Friðheimar ehf. og Gufuhlíð ehf. Samtals eru þessi fyrirtæki með rúmlega 3 ha undir gleri og nota um 6 MW af uppsettri raforku. Ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, var viðstödd undirritunina og hvatti viðstadda til frekari dáða í þessu verkefni, sem hefur verið í undirbúningi í vetur.
Grænn auðlindagarður fylgir hugmyndafræði grænna iðngarða og nær yfir ákveðið svæði með fyrirtækjum þar sem fyrirtækin leitast við að ná fram betri nýtni auðlinda, hreinni framleiðslu, stuðla að samlífi (symbiosis) fyrirtækja, draga úr loftslagsbreytingum og mengun ásamt því að fylgja félagslegum stöðlum, samnýta innviði og öðlast betri stýringu á áhættu. Grænn auðlindagarður er liður í því að byggja upp hringrásarkerfi í framleiðslu, sem byggist á því lágmarka úrgang og hámarka nýtingu auðlinda. Jafnframt gefa auðlindagarðar, grænir sem aðrir, færi á sameiginlegum innkaupum orku og þjónustu sem gæti verið hagfelld fyrir einstök fyrirtæki garðsins.
Viðburðurinn markar tímamót í áframhaldandi vinnu með Græna iðngarða (Eco Industrial Parks), sem á mikið erindi við græna orkunotendur Íslands, ekki síst í dreifðum byggðum landsins.