Framkvæmdir við byggingu nýs leikskóla

0
1316

Framkvæmdir við jarðvegsvinnu til undirbúnings nýrri leikskólabyggingu við Kirkjubraut 47 hófust þann 9. maí. Í gær þriðjudaginn 6. júní sl. sló Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri fyrstu klemmuna á mót fyrir uppslátt sökkla og þar með telst bygging leikskólans hafin. Leikskólabörn og starfsfólk, ásamt formanni fræðslunefndar og nokkrum öðrum voru viðstödd athöfnina. Í máli bæjarstjóra kom m.a. fram að með þessu væri stigið stórt skref til umbóta í aðstöðu fyrir starfsfólk og börn á leikskólaaldri.

Leikskólinn sem þarna mun rísa verður um 980 fermetrar að stærð, þar sem gert er ráð fyrir sex deildum og rými fyrir um 140 börnum. Með þessum nýja leikskóla mun öll aðstaða til leikskólastarfs verða eins og best verður á kosið og uppfylla nútímakröfur sem gerðar eru til húsnæði leikskóla.

Hönnunin var unnin af arkitektastofunni Arkþing og verkfræðistofunni Mannvit. Unnið var að hönnuninni í samráði fulltrúa bæjarstjórnar og stjórnendur og starfsfólk leikskólanna einnig var kallað eftir hugmyndum foreldra.

Aðalverktakinn er Karlsbrekka ehf. og eru verklok áætluð í júní 2018.