Eftir að Eystrahorn hætti útgáfu og enn frekar eftir að ég hætti í vinnunni sem ég hafði starfað í síðustu 10 ár hef ég ítrekað fengið fyrirspurnir um hvort ekki stæði til að hefja útgáfu blaðsins á ný. Það eru ekki nema um þrjú ár síðan við Tjörvi hættum og það stóð alls ekki til að fara aftur af stað, enda er varla hægt að segja að útgáfan hafi verið sjálfbær í þeirri mynd sem hún þá var. En það hefur ekki leynt sér að söknuðurinn eftir Eystrahorni er nánast áþreifanlegur. 

Auglýsing

Einn góðan dag í þungri umferð í Reykjavík í lok nóvember hringdi ég í Tjörva og sagði honum að ég væri að spá í að gefa út jólablað Eystrahorns. Það þýddi reyndar að hann var sjálfkrafa ráðinn í aukastarf við umbrot, og hann var til í það. 

Viðbrögðin hafa farið fram úr öllum væntingum. Fjöldi fólks hefur haft samband, sent hugmyndir, hvatt okkur áfram, sent jólakveðjur og stutt við útgáfuna. Fyrir það erum við afar þakklát. Þetta hefur staðfest þá tilfinningu sem við höfðum, að Eystrahorn skiptir íbúa máli.

Í kjölfarið höfum við hafið samtal um hvort Eystrahorn geti hafið reglubundna útgáfu á ný, þó í breyttri mynd en áður. Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á miðlun og þessi reynsla hefur kveikt áframhaldandi hugmyndir, meðal annars um uppsetningu vefsins eystrahorn.is og frekari útgáfu. 

Vonandi hafið þið gaman af blaðinu. Við lögðum áherslu á að vanda efnisval og gefa okkur tíma til að setja það saman. Þegar leið á undirbúninginn bárust fleiri greinar og efni en upphaflega var gert ráð fyrir, sem staðfesti áhugann og þátttökuna í kringum útgáfuna. Af því höfum við lært fyrir framhaldið, ekki endilega að stytta blaðið heldur að það verði innbundið, jólabókin í ár? 

Hafi fólk áhuga á að styðja við framtíð Eystrahorns eða fylgjast með næstu skrefum er hægt að hafa samband við mig á Facebook. 

Gleðileg jól

Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir