Brúargerð yfir Hornafjarðarfljót

0
795

Mikið vatn hefur runnið undir gömlu brúna yfir Hornafjarðarfljót frá því fyrst var farið að tala um að það þyrfti að færa þjóðveginn og endurnýja brúarkostinn sem uppfyllti kröfur tímans.

Það hefur gengið á ýmsu varðandi þær framkvæmdir. Allir sem vettlingi hafa valdið hafa þvælst fyrir framkvæmdinni, sem ef til vill þegar upp er staðið er ágætt því sífellt fleygir tækninni fram nýungum í byggingaverkfræði og svo framvegis.

Án þess að ætla að rekja þá sögu nánar ætla ég að snúa mér að sögu vegagerðarinnar undir stjórn nýfrjálshyggjupostula nútímans þar sem oddviti Framsóknar í kjördæminu leiðir hið furðulega ferli fjármögnunar á væntanlegri framkvæmd.

Það vekur sannarlega mikla furðu þegar hin ímyndaða snilldarlausn Framsóknarmannsins Sigurðar Inga Jóhannssonar liggur fyrir að fjármagna eigi vegagerð og brúargerð yfir Hornafjarðarfljót með lánsfé frá fjármagnseigendum. Vitað er að fjármagnskostnaður verður aldrei undir 30% umfram framkvæmdakostnað. Fjárfestar gera arðsemiskröfu og munu fjármagna verkið að stórum hluta með lánsfé sem er miklu dýrara en þegar ríkið tekur lán. Það verður það gjald sem við vegfarendur munum þurfa að gjalda gangi þessi heimskulega hugmynd eftir.

Kannski vita Framsóknarmenn ekki að Landsbankinn, banki allra landsmanna, lánar svona upphæðir með um 2% vöxtum, jafnvel tæplega það. Það er vitað og ekki ástæða til að draga það í efa. Auk þess eigum við þennan banka og hljótum því að hafa talsvert um það að segja í  hvað og með hvaða kjörum bankinn lánar sitt fé. Reyndar gleymdist alveg að spyrja eigendurna þegar Guðmundur í Brimi keypti Kristján Loftsson út úr Granda á sínum tíma en einmitt þá og einmitt þar fór slík lánveiting fram. Ástæða þess var sögð hvað veðið væri tryggt en það var auðvitað sameign þjóðar sem þar var og er undir.

Auðvitað er þjóðvegurinn sameign allrar þjóðarinnar þó hann sé ekki jafn augljós söluvara og syndandi fiskur í Atlantshafinu en veðhæfi þjóðvegarins ætti þó að vera ekki síðri en hverful fiskgengd umhverfis landið samanber makrílinn þetta árið.

Patentaðferð hæstvirts samgönguráðherra að láta okkur vegfarendur borga 30% meira fyrir vegspottann og brýnnar en kostar að gera mannvirkin er svo gersamlega fráleit að það þarfnast gaumgæfilegrar rannsóknar. Hvernig dettur manninum í hug að bera það á borð fyrir sæmilega viti borið fólk að þetta sé hin eina rétta leið? Hvers vegna annaðhvort fjármagnar ríkissjóður ekki framkvæmdina beint eða tekur sjálfur lán fyrir henni í sínum eigin banka ef svo þröngt er í búi ríkissjóðs nú um stundir að það þurfi lántöku?

Það sem mér finnst þó bíta höfuðið af skömminni er hin grimma auglýsingamennska samgönguráðherra á öflugasta samfélagsmiðli veraldar Facebook, miðli sem rukkar fyrir slíkar auglýsingar en greiðir hvergi í veröldinni krónu í skatt. Þetta eru allt auglýsingar sem ég og þú lesandi góður erum látnir borga fyrir með sjálftöku auglýsanda á fjármunum úr ríkissjóði.

Er von að spurt sé, „hvar eru múturnar“?

Við Sósíalistar mótmælum harðlega þessari subbulegu aðferðarfræði við framkvæmdir á vegum ríkisins almennt. Við viljum kostnaðaráætlun sem farið er eftir af hálfu annars vegar verktaka á vegum vegagerðarinnar eða vegagerðarinnar sjálfrar.

Þórbergur Torfason skipar 6. Sæti á lista Sósíalista í Suðurkjördæmi.

Höfundur býr vestan Fljóta.