ART er smart

0
409
Samninginn undirrituðu Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður SASS og Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra

Samningur hefur verið undirritaður á milli Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og félagsmálaráðuneytisins sem tryggir rekstur ART-verkefnisins næstu þrjú árin. Undirritunin markar þáttaskil í rekstrinum og er viðurkenning á að ART úrræðið sé komið til að vera. Því má segja að þetta sé stór dagur og ákveðinn sigur fyrir Sunnlendinga alla en samningurinn tryggir áframhaldandi þjónustu í heimabyggð.
ART (Agression Replacement training) hefur verið starfrækt á Suðurlandi frá árinu 2005. ART er uppeldisleg aðferðafræði sem skiptist í þrjá þætti, þ.e. félagsfærni, sjálfstjórn og siðferði. Með því að vinna á markvissan hátt með þessa þætti er hægt að láta þá vinna betur saman sem stuðlar að bættri líðan og betri tilfinningastjórnun einstaklingsins. Þar fyrir utan eykst samskiptafærni heima, á vinnustað, í skóla og vinahóp.
Teymið veitir úrræði fyrir fjölskyldur barna með tilfinninga- og/eða hegðunarvanda. Einnig býður teymið upp á námskeið fyrir fagfólk í skólum, þ.m.t. leik- og grunnskólum, velferðarþjónustum og fleira. Fjöldi ART námskeiða hafa verið haldin um land allt. Samningurinn gerir teyminu kleift að skipuleggja starf sitt lengra fram í tímann og ýta úr vör nýjum þróunarverkefnum. Þetta er mikið gleðiefni og eru starfsmenn samtakanna og stjórn SASS afar þakklát stuðningi sveitarstjórna og þingmanna sem stutt hafa við bakið á verkefninu á síðustu árum, sem og Ásmundi Einari Daðasyni félags- og barnamálaráðherra.

Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga:
„Í sextán ára sögu ART-verkefnisins hafa námskeið verið haldin vítt og breitt um landið. ART hefur sannað gildið sitt sem forvarnar- og meðferðarúrræði sem hefur gagnast Sunnlendingum og öðrum Íslendingum. ART hefur gert góð samfélög enn betri. ART er smart.“

Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra:
„Aðgengi barna að þjónustu við hæfi án hindrana er gríðarlega mikilvægt. ART verkefnið er öflugt grasrótarverkefni sem hefur sannað sig og verið mikilvægt verkfæri fyrir börn og unglinga þegar það kemur að líðan þeirra og tilfinningastjórnun.  Með þessum samningi getur teymið skipulagt starfið lengra fram í tímann og eflt það og styrkt.“