Samkór Hornafjarðar býður ykkur hjartanlega velkomin á vortónleika sína fimmtudaginn 4. júní.
Aðgangseyrir er 3.000 kr. Enginn posi verður á staðnum en möguleiki er að millifæra á staðnum. Efnisskráin er samansafn af bestu lögunum sem við höfum verið að æfa síðustu tvö árin undir stjórn Hrafnkels Karlssonar.

Auglýsing

Sungin verða lög sem samin hafa verið á síðustu fimm öldunum. Það er svo magnað og forréttindi að geta hist í hverri viku, tekið tvær klukkustundir úr amstri dagsins til þess að geta hist og sungið saman, undirritaður getur staðfest að það skiptir ekki máli hvað er í gangi í lífi okkar eða samfélagsins að við getum komið saman sem eitt í eina kvöldstund til þess að hittast og syngja listagyðjunni til dýrðar.

Á efnisskránni verða sungin lög eftir Kristínu Jóhannesdóttur, Jóhann Morávek, Jón Nordal, Thomas Tallis, Sigvalda Kaldalóns og margt fleira. Einnig mun kórinn syngja þessa sömu efnisskrá á ferðalagi sínu til Bretlands í byrjun júní. Undirritaður þakkar einnig öllum fyrir stuðninginn á þessum síðastliðnum árum og þakkar kórnum einnig fyrir samstarfið meðan hann hefur verið hér, það eru algjör forréttindi að stjórna Samkór Hornafjarðar í þeim fjölmörgu og fjölbreyttu verkefnum sem við höfum tekið að okkur þessi síðustu ár.

Tags: