
Sindri er á leið upp í úrvalsdeild karla í körfubolta í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir 85:80 sigur á Breiðabliki í oddaleik umspilsins.
Leikurinn var jafn og spennandi, en Breiðablik var yfir í hálfleik, 44:37. Sindramenn börðust hins vegar til baka, minnkuðu muninn fyrir fjórða leikhluta og náðu að tryggja sér sigurinn á lokamínútunum.
Gísli Þórarinn Hallsson og Myles Brandon McCrary voru stigahæstir hjá Sindra með 19 stig hvor. Jason Gigliotti átti einnig stórleik, skoraði 16 stig og tók 14 fráköst.
Með sigrinum skrifar Sindri nýjan kafla í sögu félagsins og mun leika í efstu deild á næsta tímabili.
Nánar verður fjallað um sigurinn í næsta tölublaði sem kemur út fimmtudaginn 4. júní.



