Sumarið nálgast og nú er rétt að láta vita hver áformin eru varðandi Eystrahorn í sumar.
Í júní er stefnt að því að gefa út tvö blöð. Það fyrra kemur út fimmtudaginn 4. júní, í aðdraganda sjómannadags. Seinna blaðið kemur út miðvikudaginn 24. júní, í aðdraganda Humarhátíðar.

Auglýsing

Eftir það fer prentaða blaðið í sumarfrí í júlí og ágúst, en vefurinn, eystrahorn.is, verður áfram virkur vettvangur fyrir efni úr samfélaginu.
Á vefnum verður hægt að koma tilkynningum, viðburðum og tilbúnu efni á framfæri. Þar verður einnig hægt að auglýsa með auglýsingaborðum eða merktu kynningarefni, eftir því sem við á.

Fyrsta blað eftir sumarfrí kemur út fimmtudaginn 3. september.

Við hvetjum félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og aðra sem vilja koma efni, auglýsingum eða viðburðum á framfæri í sumar til að hafa þessar dagsetningar í huga og setja sig í samband við Guðrúnu á netfangið eystrahorn@eystrahorn.is.

Tags: