
Stuðningsfjölskyldur
Stuðningsfjölskyldur er úrræði sem sveitarfélögum ber að veita samkvæmt 15. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, 85. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2022 auk laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Stuðningsfjölskyldur eru heimili sem bjóða börnum að dvelja hjá sér tímabundið og gegna því mikilvæga hlutverki að veita börnum möguleika á aukinni félagslegri þátttöku og létta álagi af fjölskyldum barna. Stuðningsfjölskyldur geta með þátttöku sinni aukið lífsgæði og vellíðan barna, eflt þau félagslega, stuðlað að aukinni tengslamyndun og veitt foreldrum hvíld og aukið svigrúm til að sinna öðrum verkefnum.
Stuðningsfjölskylda getur verið einstaklingur eða par sem býr á Hornafirði eða nágrenni, er ábyrgur, áhugasamur og hefur hæfni til að annast börn. Leitast er eftir einstaklingum sem búa yfir góðum samskiptahæfileikum og umhyggju. Þeir aðilar sem taka að sér að gerast stuðningsfjölskylda fá fræðslu um þarfir þeirra barna sem um ræðir frá foreldrum barnanna sem og fagaðilum ef þess gerist þörf.
Einstaklingsstuðningur
Einstaklingsstuðningur (félagsleg liðveisla) er úrræði sem sveitarfélögum ber að veita samkvæmt VII. og VIII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, 8. gr. sem og IV. kafla laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018, barnaverndarlögum nr. 80/2002 og lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021.
Einstaklingsstuðningur er persónuleg og markviss aðstoð fyrir einstaklinga sem þarfnast stuðnings við félagslega- og samfélagslega þátttöku, tengslamyndun eða dagleg verkefni. Markmið með einstaklingsstuðningi er að rjúfa félagslega einangrun, efla lífsleikni, samfélagsþátttöku, efla börn til aukinnar sjálfshjálpar og létta álagi af fjölskyldu og barninu sjálfu. Einstaklingsstuðningur felur t.d. í sér að fylgja börnum á félags- og íþróttaviðburði, kíkja á kaffihús, fara í göngutúr eða annað sem barnið hefur gaman af.
Stuðningsfjölskyldur og einstaklingsstuðningur eru mikilvæg og sveigjanleg úrræði sem styrkir einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið í heild sinni. Úrræðin geta aukið vellíðan, stuðlað að sjálfstæði og veita ómetanlega stuðning þar sem hann skiptir mestu máli.
Velferðarsvið Sveitarfélagsins Hornafjarðar sér um framkvæmd þjónustunnar og ef þú eða einhver sem þú þekkir hefur áhuga á að fá að vita meira þá hvetjum við hér með til þess að þú hafir samband í síma 470-8011 eða á velferd@hornafjordur.is – hlökkum til að heyra frá þér!

Aðsend grein
F.h. Velferðarsviðs
Sædís Ösp Valdemarsdóttir, umsjónarfélagsráðgjafi



