
Kæru Hornfirðingar og aðrir íbúar, mig langar að biðja ykkur um að sitja fyrir.
Höfn var mitt fagra æskuheimili en nú sný ég aftur, 30 árum síðar, sem myndlistarmaður til að taka myndir af bæ og fólki fyrir sýningu í Svavarssafni. Ég óska hér með eftir samstarfi við Hornfirðinga um að sitja fyrir á portrettljósmynd á fyrstu dögum júnímánaðar. Þátttakendur fá að sjálfsögðu myndina að gjöf að myndatöku lokinni en gefa á móti tíma sinn og ásjónu.
Þegar hef ég byrjað að safna útsýni og birtu, hreindýra- og götuhornum og tekið myndir af bænahúsum og trampolínum. Höfn er í senn eins og ég man og sem ný veröld. Sprungurnar í gangstéttunum eru kunnuglegar en hvalbeinin hafa flutt sig milli garða. Allir vegir liggja ennþá út í Ósland en ný hverfi hafa risið, komin sundlaug þar sem eitt sinn var tjörn og blómabúð þar sem eitt sinn var sundlaug. En nú langar mig til að hitta fólkið sem skapar bæinn, festa það – ykkur – á filmu. Því bið ég þig, kæri lesandi, um að leggja mér og verkinu lið 2.-4. júní. Þið getið komið til mín eða ég til ykkar, allt eftir hentisemi hvers og eins. Endilega heyrið í mér í síma 6908902 eða með að skrifa til mín hér hallgerdur.hallgrims@gmail.com Fyrri verk má finna hér fyrir áhugasöm: hallgerdur.com





Aðsend grein
Hallgerður Hallgrímsdóttir
myndlistarmaður og fyrrverandi íbúi.



