
Urban Sketchers Höfn er nýr teiknihópur á Höfn fyrir fólk sem hefur áhuga á að teikna umhverfið sitt á staðnum, hvort sem það er inni, úti, í bænum eða úti í náttúrunni. Hugmyndin er einföld, að hittast, teikna það sem fyrir augu ber og deila stundinni með öðrum.
Hvað er USK? Á vefsíðu Urban Sketchers, urbansketchers.org, er hreyfingunni lýst sem alþjóðlegu samfélagi sem styður og sameinar grasrótarhreyfingu teiknara. Markmiðið er að efla listrænt, frásagnarlegt og fræðandi gildi teikninga sem gerðar eru á staðnum, hvetja til slíkrar iðkunar og tengja saman fólk um allan heim sem teiknar þar sem það býr eða ferðast. Það getur verið inni eða úti. Það sem skiptir máli er að fanga umhverfið eins og það birtist á þeirri stundu.
Alþjóðasamfélagið var stofnað af Gabriel Campanario í Seattle eftir að hann setti á laggirnar netspjallsvettvang árið 2007 þar sem hann skrifaði:
„Fyrir alla teiknara sem elska að teikna borgirnar þar sem þeir búa í og heimsækja, út um gluggann heima hjá sér, á kaffihúsi, í garðinum, standandi á götuhorni, alltaf á staðnum, ekki eftir ljósmyndum eða úr minni.“
Ári síðar bauð hann hópi teiknara að deila teikningum sínum og frásögnum á bloggi. Eftir það jókst sýnileiki USK hreyfingarinnar og meðlimum fjölgaði um allan heim. Til að sameina hópana fylgja þeir sameiginlegri stefnuskrá:
- Við teiknum á staðnum, inni eða úti, og festum það sem við sjáum með beinni athugun.
- Teikningar okkar segja sögu umhverfisins, staðanna þar sem við búum og þeirra staða sem við heimsækjum.
- Teikningar okkar eru heimild um tíma og stað.
- Við erum trú því sem við sjáum.
- Við notum hvaða miðil sem er og metum einstaklingsbundinn stíl hvers og eins.
- Við styðjum hvert annað og teiknum saman.
- Við deilum teikningum okkar á netinu.
- Við sýnum heiminum, eina teikningu í einu.
Ég kynntist Urban Sketchers á helgarnámskeiði og vinnustofu í Málaga á Spáni, þar sem mismunandi teiknarar sýndu teikningar sínar, skissubækur, efni og aðferðir. Síðan þá hef ég tekið þátt í samkomum Urban Sketchers Málaga. Í hópnum fann ég áhugavert og kraftmikið samfélag fólks sem deilir ástríðu minni fyrir teikningu og hefur gaman af því að skapa saman. Það hjálpaði mér að finna sjálfa mig í teikningunum, hætta að bera mig saman við aðra, því hver teikning er einstök, og vera óhrædd við að gera mistök.




Ég er mjög ánægð með að geta stofnað þennan hóp og kynnast nýju fólki sem deilir sömu ástríðu eða vill einfaldlega eiga góða stund við að teikna. Mér finnst líka mjög spennandi að Urban Sketchers Höfn verði fyrsti opinberi Urban Sketchers hópurinn á Íslandi og að við getum saman sýnt Höfn og nágrenni frá fjölbreyttum listrænum sjónarhornum.
Við hittumst venjulega tvisvar í mánuði, en það getur þó breyst eftir því hvað er að gerast í bænum hverju sinni. Tími og staðsetning verða auglýst á Facebook og Instagram einni til tveimur vikum fyrir hvern hitting.
Við erum alltaf opin fyrir nýjum stöðum til að teikna á. Ef þú ert með hugmyndir, hafðu samband á Facebook: Urban Sketchers Höfn, á Instagram: @uskhofn, eða sendu tölvupóst á uskhofn@gmail.com

Aida González Vicente



