Fjárveitingin er ætluð til framkvæmda við nýja brú yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi á 2. og 3. tímabili áætlunarinnar.
Fjárveitingin er ætluð til framkvæmda við nýja brú yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi á 2. og 3. tímabili áætlunarinnar.

Um páska fyrir tíu árum fór höfundur í ferð til Hornafjarðar og það var kominn nýr markhópur á Hringveginum, erlendir ferðamenn sem ekki voru vanir einbreiðum brúm. Á bakaleiðinni var stoppað við allar einbreiðar brýr 21 að tölu og tekin mynd og áhætta metin.

Auglýsing

Í kjölfarið var haft samband við hagsmunaaðila og þeim kynnt niðurstaðan. Allir tíu Alþingismenn fengu skýrslu og stóð Sigurður Ingi Jóhannsson sig vel, svaraði erindinu og ætlaði að aðstoða við að fjarlægja dauðagildrur úr umferðinni. Það kom á óvart að innfæddir sýndu lítinn áhuga en Kvennakórinn skar sig úr, tók sig til og söng við allar einbreiðar brýr og vakti athygli á málinu. Einnig voru erindi send á Vegagerðina og umsögn í Samgönguáætlun.

Árið eftir sáust framfarir, aðeins voru fjögur blikkljós við brýrnar en í febrúar 2017 blikkaði ljós við allar einbreiðu brýrnar.

Í ferð árið 2018 var einnig búið að koma skýrri aðvörun 500 metrum áður og hraði lækkaður við nokkrar brýr. Þá minnkaði áhættan og metið að engin dauðagildra væri við brýrnar.

Í vor verður nýr vegur tekinn í notkun yfir Hornafjarðarfljót og við það hverfa þrjár einbreiðar brýr. Taflan hér að neðan sýnir þróun síðustu tíu ára: brúm hefur fækkað jafnt og þétt og öryggi aukist. Sífellt fleiri falla nú í flokk öruggari lausna (grænu brýrnar).

Samgönguáætlun 2026-2040

Eins og taflan sýnir hefur einbreiðum brúm á Hringveginum fækkað á undanförnum árum og samkvæmt Samgönguáætlun 2026–2040 er stefnt að því að þær hverfi alveg. Enn eru þó 26 einbreiðar brýr eftir á Hringveginum og því mikilvægt að fylgja áætluninni eftir svo árangurinn sem taflan sýnir haldi áfram.

Brýrnar tvær sem eftir eru í Vestursýslunni hverfa þegar vegur verður færður. Einnig brýrnar fjórar sem eru eftir í Öræfum. Búið er að tryggja fjármagn fyrir nýja brú yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi en ekkert er minnst á brúna yfir Kolgrímu. Brýrnar fimm í Lóni munu hverfa með flutningi á nýjum vegi.

Undirritaður hvetur bæjarstjórn Hornafjarðar til að fylgjast vel með og þrýsta á stjórnvöld um að standa við áætlunina. Einbreiðar brýr eru enn svartblettur í umferðinni. Í grein í Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar frá ágúst 2022 kemur fram að frá aldamótum hafi orðið um 400 slys á einbreiðum brúm, eða um 20 á ári að meðaltali, þar af 8 banaslys. Þróunin hefur þó verið jákvæð síðustu ár og slysum fækkað samhliða fækkun hættulegra einbreiðra brúa.

Ef allt gengur eftir gæti sá dagur runnið upp að hægt verði að aka um Ríki Vatnajökuls án þess að spyrja: „Hvor á að bakka?“

Sigurpáll Ingibergsson
Áhugamaður um brýr

Tags: