Eva Björk og Dagmar Elín ásamt hornfirskum kvenfélagskonum
Eva Björk og Dagmar Elín ásamt hornfirskum kvenfélagskonum

Samband austur skaftfellskra kvenna, SASK, tók á móti þeim Dagmar Elínu Sigurðardóttur, forseta Kvenfélagasambands Íslands, KÍ, og Evu Björk Harðardóttur, varaforseta KÍ, miðvikudaginn 15. apríl síðastliðinn.

Auglýsing

Af því tilefni var haldinn opinn kynningarfundur í safnaðarheimili Hafnarkirkju í hádeginu, þar sem kynnt var starfsemi Kvenfélagasambands Íslands og kvenfélaganna. Boðið var upp á brauðmeti, salat, heimabökuð ostahorn, kaffi og konfekt. Fundurinn var vel sóttur og góðar umræður sköpuðust um starfið. Ljóst var að mikill hugur er í konum á svæðinu.

Guðbjörg Ósk, formaður SASK, bauð gesti velkomna ásamt konum úr stjórn sambandsins og kvenfélögum af svæðinu. Þær Dagmar og Eva Björk kynntu fjölbreytt starf Kvenfélagasambandsins, meðal annars Húsfreyjuna, Leiðbeiningastöðina, Viku einmanaleikans og fleiri verkefni.

Aðaltilgangur ferðar þeirra til Hornafjarðar var að afhenda gjöf til ljósmóðurinnar á Höfn. Í tilefni af 90 ára afmæli Kvenfélagasambands Íslands árið 2020 var farið í söfnunarátak til að kaupa búnað sem tengir rafrænt öll ómtæki á landinu. Tækin sem keypt voru fyrir söfnunarféð eru nú komin á alla fæðingarstaði landsins.

Afgangur varð af söfnunarfénu og var ákveðið, í samráði við yfirljósmóður HSU, að kaupa tæki til notkunar á Höfn. Um er að ræða gulumæli og heyrnarmæli sem geta flýtt fyrir því að foreldrar komist heim eftir fæðingu barns.

Heiðdís Anna Marteinsdóttir ljósmóðir tók á móti gjöfunum og þakkaði kærlega fyrir. Hún sagði tækin þegar hafa komið að góðum notum, en þau komu til Hafnar í desember síðastliðnum.

Tags: