Í mars eru liðin fimm ár frá því Eystrahorn greindi frá opnun nýrrar blómabúðar á Hafnarbraut 34. Blómabúðin opnaði 20. mars 2021, en er nú til húsa í húsnæði sem margir þekkja sem gömlu sundlaugina við Hafnarbraut 11.

Auglýsing

Amor Mantilla segir að draumurinn um að vinna með blóm hafi lengi verið til staðar, en upphafið hafi verið einfalt. Hún byrjaði heima, viku fyrir bóndadag 2021, þegar hún tók fyrst við blómapöntunum. Viðtökurnar urðu til þess að hún lét verða af því að opna verslun, og segir hún að opnun verslunarinnar á sínum tíma hafi verið bæði áskorun og sigur í senn.

Á fimm árum hefur blómabúðin flutt þrisvar og segir Amor að núverandi staðsetning við Hafnarbraut 11 hafi haft jákvæð áhrif og reksturinn sé nú stöðugri. Vöruúrval og þjónusta hefur líka þróast. Í dag er megináhersla á fersk og vönduð blóm, blómaskreytingar og persónulega þjónustu fyrir ólík tilefni. Jafnframt er boðið upp á valdar tækifærisgjafir sem styðja við blómaúrvalið. Amor segir að hún leggi nú meiri áherslu á gæði fremur en magn, og að reynslan hafi gert vinnubrögðin markvissari.

Hún nefnir einnig að eitt það skemmtilegasta við starfið sé að fá að kynna fyrir Hornfirðingum blóm og samsetningar sem ekki hafi verið áberandi hér áður. Amor er upprunalega frá Filippseyjum og þekkir því margar plöntutegundir sem ekki vaxa við íslenskar aðstæður, og að sú þekking nýtist henni í vöruvali og hugmyndum þegar hún setur saman blóm og skreytingar.

Amor segir að það sem hafi komið henni mest á óvart í rekstrinum tengdist því hve litla reynslu hún hafði af rekstri í upphafi. Hún hafi fundið fyrir óvissu og efasemdum á köflum og eftir á að hyggja hefði hún viljað sækja sér námskeið í rekstri fyrr. Á sama tíma segir hún að reynslan hafi kennt sér mikið og að sjálfstraustið hafi aukist með árunum. 

Amor segir að hún sé sérstaklega þakklát Hornfirðingum fyrir hlýjar viðtökur og traust í gegnum árin. Hún nefnir einnig stuðning fjölskyldu og vina sem hafi skipt miklu þegar hefur reynt á.

Blómabúðin er opin á virkum dögum frá kl. 14 til 17 og á laugardögum frá kl. 12 til 16. Pantanir eru teknar í síma 848 6807 og á netfanginu amorblomabud@gmail.com.

Frá ritstjórn
Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir

Tags: