Á síðustu misserum hefur ákallið verið skýrt, fólk vill lægri álögur og meiri stuðning í daglegu lífi. Í því skatta- og vaxtaumhverfi sem við lifum er þetta eðlileg krafa. Kostnaður við að ala upp börn hefur hækkað og fyrir margar fjölskyldur er orðið verulega þungt að standa undir frístundum, skólamáltíðum og öllu sem fylgir uppvexti barna í nútímasamfélagi.

Auglýsing

Við eigum ekki að sætta okkur við að foreldrar þurfi að velja á milli þess að halda heimilisbókhaldinu í jafnvægi eða leyfa börnum sínum að æfa íþróttir og taka þátt í félagsstarfi. Það er raunveruleikinn hjá of mörgum, við þurfum að grípa inní þetta.

Sem sveitarfélag höfum við þetta verkfæri í höndunum. Við getum tekið ákvarðanir sem hafa bein áhrif á veskið hjá íbúum. Það ætlum við að gera. Það er auðvelt að tala um lægri álögur í aðdraganda kosninga. Erfiðara er að setja fram skýrar aðgerðir sem raunverulega létta undir með fólki og standa við þær.

Við ætlum að fella niður fæðisgjöld í leikskólum og frístund og taka upp nýtt þrepaskipt systkinaafsláttarkerfi. Þannig fá fjölskyldur með fleiri börn raunverulegan stuðning sem munar um. Við ætlum einnig að tvöfalda frístundastyrkinn upp í 140 þúsund krónur og rýmka nýtingu hans, meðal annars upp í mótsgjöld. Það þýðir einfaldlega að fleiri börn geta tekið þátt óháð efnahag foreldra. Jafnframt tryggjum við stuðning við yngstu börnin með 30 þúsund króna styrk fyrir 5 ára og yngri. Við höldum áfram að byggja upp öflugt skóla- og frístundastarf í öllu sveitarfélaginu, í nánu samstarfi við íþróttafélög og aðra sem standa að starfi fyrir börn og ungmenni.

En sterkt samfélag byggir á fleiri stoðum. Við viljum einnig efla virkni og vellíðan eldri íbúa með nýjum frístundastyrk sem styður við heilsueflingu, félagslega virkni og aukin lífsgæði.

Þetta eru aðgerðir sem við höfum stjórn á án utanaðkomandi áhrifa. Aðgerðir sem skipta máli. Þetta er fjárfesting í fjölskyldum, í jöfnum tækifærum í barnvænu samfélagi þar sem allir eiga að fá að njóta sín.

Árangur áfram, fyrir fjölskyldur

Hjördís Edda Olgeirsdóttir
2. sæti á lista XD Hornafirði 

Tags: