Á komandi kjörtímabili eru mál fjölskyldunnar í fyrirrúmi hjá Kex framboði. Á síðustu árum hefur ungt fólk í auknum mæli flutt aftur heim eða valið að setjast að á landsbyggðinni til að stofna fjölskyldu í öruggu og fallegu umhverfi. Við þekkjum öll forréttindin sem fylgja því að búa í litlu samfélagi þar sem börnin okkar eru umvafin fólki sem láta þau sig varða. Hér er gott að vera en við getum gert enn betur.

Auglýsing

Starfsumhverfið skiptir máli

Á líðandi kjörtímabili fór mikil vinna í að bæta starfsaðstæður á leikskólanum Sjónarhóli. Settur var starfshópur með fulltrúum starfsfólks, foreldra, bæjarstjórnar og fleiri aðila. Sú vinna skilaði aðgerðum sem komu til móts við starfsfólk, léttu á álagi og bættu starfsánægju.

Við viljum halda þeirri vinnu áfram og einnig hefja sambærilega vinnu í Grunnskóla Hornafjarðar.

Fjölskylduvænt samfélag

Á stefnuskrá Kex 2022 settum við fram það markmið að halda áfram viðbyggingu við Sjónarhól. Árið 2025 voru opnaðar tvær nýjar og glæsilegar deildir og með þeim höfum við náð því mikilvæga markmiði að geta tekið á móti börnum frá 12 mánaða aldri. Í dag komast öll börn að sem þurfa pláss, en staðan getur breyst hratt. Miðað við síðustu tvo árganga þá virðist vera að börnum fari fjölgandi, en þeir telja báðir yfir 30 börn. Fjölgunin er gleðiefni en við þurfum að huga strax að framtíðinni og því hvernig við sjáum leikskólamál á Höfn þróast.

Lækkum gjöldin

Kex vill lækka leikskólagjöld niður í 25.000 krónur miðað við fulla vistun með fæði. Einnig viljum við að fjölskyldur greiði aðeins eitt vistunargjald, óháð fjölda barna, hvort sem er á Sjónarhóli eða í Kátakoti. Við teljum mikilvægt að byggja ofan á þann árangur sem náðst hefur í leikskólamálum í stað þess að fara í ótímabærar aðgerðir. Þess vegna leggjum við ekki áherslu á gjaldfrjálsan leikskóla eins og staðan er núna. Slíkar breytingar þurfa að vera vel undirbúnar og unnar í sátt við alla aðila.

Aukið svigrúm fyrir börn

Frístundir eru mikilvægur grunnur fyrir öll börn, bæði fyrir líkamlega heilsu en einnig fyrir félagslega færni. Við viljum auka svigrúm yngstu barnanna sem eru að stíga sín fyrstu skref á sviði íþrótta og koma á fjölgreinaverkefni fyrir börn í 1. og 2. Bekk. Með því fá þau tækifæri til að prófa ólíkar íþróttir fyrir sanngjarnt verð. Þannig fá bæði börn og foreldrar meira svigrúm til að finna hvað hentar þeim best.

Við viljum einnig koma á tekjutengdum frístundastyrk svo að þátttaka barna í íþróttum ráðist ekki af fjárhag foreldra.

Nýverið fórum við í endurskoðun á fyrirkomulagi frístundaaksturs fyrir börn í dreifbýli. Í samráði við foreldra og rekstraraðila höfum við náð að auka þátttöku barna í dreifbýli í tómstundum og félagslífi með einföldum breytingum á skóla og frístundaakstrinum. Aukin þátttaka barna í frístundum í öllu sveitarfélaginu er mikilvæg og viljum við þess vegna efla enn frekar samstarfið við ungmenna- og íþróttafélögin í sveitarfélaginu með það að markmiði að auka möguleika barna til þátttöku í frístundastarfi í þeirra nærumhverfi.

Á næsta kjörtímabili ætlar Kex að:

  • Koma á legg fjölgreinaverkefni svo að öll börn í 1.-2. bekk hafi möguleika á að æfa allar íþróttir fyrir sanngjarnt gjald.
  • Tekjutengdan frístundastyrk til þess að jafna aðgengi barna að frístundum óháð fjárhag.
  • Lækka leikskólagjöld niður í að minnsta kosti 25.000 krónur miðað við fulla vistun með fæði.
  • Að fjölskyldur greiði einungis eitt vistunargjald, óháð fjölda barna í leikskóla og Kátakoti.
  • Horfa til framtíðar með fólksfjölgun í huga og fara í undirbúning á öðru húsnæði fyrir leikskóla á Höfn.
  • Vinna að því að koma á samstarfi á milli sveitarfélagsins og ungmennafélaganna í sveitarfélaginu til þess að tryggja frekari frístundaþátttöku barna í dreifbýli.
  • Fara í markvissa vinnu til þess að auka þátttöku barna af erlendum uppruna í tómstunda- og félagsstarfi.
  • Byggja að minnsta kosti tvo leikvelli á kjörtímabilinu samhliða viðhaldi og endurnýjun á öðrum. Uppbygging á nýjum leikvöllum yrði í dreifbýli en endurnýjun myndi eiga sér stað á leikvöllum innan Hafnar.

Við viljum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að koma til móts við fjölskyldur, án þess að raska því sem er að virka eða fara í óábyrgar lækkanir. Þetta eru raunhæfar leiðir sem við viljum fara í til að bæta líf fjölskyldna.

Setjum X við K 16. maí
Guðrún Stefanía Vopnfjörð


Tags: