Við í Miðflokknum á Hornafirði erum nýtt framboð sem vill láta gott af sér leiða. Við leggjum mikið upp úr því að vinna fyrir fólkið okkar og sveitarfélagið í heild.

Fasteignagjöld
Af nógu er að taka þegar kemur að því sem við viljum betrumbæta eða innleiða í okkar fallega samfélag. Eitt af okkar helstu málum er að lækka álögur í íbúa.
Á síðasta kjörtímabili hækkuðu gjöld á íbúa umfram öll velsæmismörk, til að gera gott samfélag enn betra verða álögur á íbúa að vera í takt við raunveruleikann.
Sem dæmi má nefna fasteigna- og veitugjöld. Það er okkar fyrsta mál á stefnuskrá að lækka þau gjöld í það minnsta um 20%. Þessi gjöld hafa hækkað undanfarin ár og víðast hvar er mikil óánægja með þau. Við teljum þessa 20% lækkun vera mjög raunhæfa. En 20% eru aðeins 1.5% af tekjum sveitarfélagsins á ári og því nokkuð ljóst að íbúana munar meira um þessa lækkun en sveitarfélagið. Í mörgum tilfellum eru þessi gjöld há prósenta af mánaðarlegum ráðstöfunartekjum einstaklings.

Leikskólagjöld
Aðrar álögur á íbúa eru leikskólagjöld. En eitt af okkar markmiðum á kjörtímabilinu er að létta til með barnafjölskyldum. Því er næsta mál á okkar stefnuskrá að bjóða upp á frían mat í leikskólum sveitarfélagsins og í kjölfarið endurskoða gjaldskrá fyrir leikskólana. Líkt og með lækkun fasteignagjalda þá er þetta fjarri því að vera náðarhögg fyrir sveitarfélagið.

Sorpmál
Þriðja málið á stefnuskrá okkar er mál sem snertir alla. Það hefur verið talsvert hitamál um nokkurt skeið en það er einnig tengt álögum. Það eru hin margumtöluðu sorpmál, mál sem hafa valdið mikilli óánægju meðal íbúa undanfarin ár og ekki síst eftir afnám klippikortsins sem lengi var við lýði við nokkuð almenna sátt.
Núverandi fyrirkomulag fer fram á vigtun á sorpi án þess að fullnægjandi vigt sé staðsett á endurvinnslustöðinni. Kostnaður á sorpförgun er mjög íþyngjandi, þetta hefur valdið því að sorpbrennsla hefur aukist í sveitarfélaginu, sorp er losað á óviðurkenndum stöðum og jafnvel úti í náttúrunni þar sem það á alls ekki heima. Með því að taka aftur upp klippikortið brúum við bilið þar til betri, hagstæðari og varanleg lausn hefur verið fundin á þessum málum.

Samtalið heldur áfram
Hér var rétt stiklað á stóru yfir okkar auðveldustu mál, kosningaskrifstofan okkar mun brátt opnuð og verð ég þar með reglulega viðveru fram að kosningum. Ég hvet menn til að kíkja á mig og fleiri flokksmenn í kaffi,  þar verða mál sveitarfélagsins rædd á mannamáli.

Auglýsing

Opnunartíminn verður auglýstur innan skamms.

Stefnuskrána í heild sinni má svo finna á www.xmhornafjordur.is  

Reynir Ásgeirsson skrifar fyrir hönd Miðflokksins á Hornafirði

Tags: