Markmiðið með útgáfu Eystrahorns er að það verði eins konar samfélagsblað okkar Hornfirðinga. Ritstjórnarstefnan er skýr og er Eystrahorn hugsað sem nokkurs konar skilaboðaskjóða okkar Hornfirðinga.
Á þessum vettvangi gefst öllum íbúum kostur á að koma áhugaverðu efni til skila, svo lengi sem ekki er verið að leysa persónulegan ágreining eða útkljá deilur. Efnisöflun er þannig byggð á þátttöku samfélagsins. Ég tek á móti ábendingum, tek viðtöl og skrifa líka efni inn á milli þegar við á. Ritstjórnin felst því að miklu leyti í að halda utan um þessar línur, auk þess sem efni takmarkast að sjálfsögðu við pláss í blaðinu.
Ef þú vilt birta efni, senda okkur skemmtilegar myndir, ekki síst gamlar, taka viðtal við áhugaverða einstaklinga eða auglýsa í blaðinu, þá hvet ég þig til að hafa samband. Ég get aðstoðað við texta eftir þörfum og prófarkalestur og uppsetning er á okkar vegum. Við tökum einnig á móti efni á ensku og þýðum yfir á íslensku. Vefurinn mun síðar bjóða upp á að þýða texta yfir á önnur tungumál með Google Translate.
Dreifing
Dreifing blaðsins er eitt þeirra atriða sem ég hafði mestar áhyggjur af þegar við hófum útgáfu á ný. Ákveðið var að á meðan við sjáum hvort blaðið standi undir kostnaði væri rétt að sjá um dreifinguna sjálf. Viðbrögðin þegar ég óskaði eftir sjálfboðaliðum við útburð fyrsta tölublaðsins voru frábær, svo góð að áður en ég vissi af var búið að dekka dreifingu í allar götur á Höfn og í Nesjahverfi. Takk kærlega fyrir það!
Ég tók því að mér að dreifa blaðinu í sveitirnar og keyrði Hornafjörð endilangan. Ég byrjaði í sól og blíðu í Öræfum og endaði í slyddu og roki um kvöldið í Nesjum og Lóni. Þennan dag náði ég tali af mörgum íbúum í sveitinni og komst að því að þau sem ég ræddi við voru sátt við að sækja blaðið sjálf á þá staði sem til dæmis Bændablaðið liggur á.
Niðurstaðan er því sú að áfram verður stuðst við dreifingu í þéttbýli með aðstoð sjálfboðaliða og eins mun verða hægt að sækja blaðið á eftirfarandi staði:
- Í Öræfum: Freysnes og Fagurhólsmýri
- Á Höfn: N1, Olís og Húsasmiðjan
Í einhverjum tilfellum hafa íbúar í sveitunum boðist til að dreifa blaðinu á sín svæði. Það er mjög velkomið, en þá getur verið gott að láta vita af því til dæmis í íbúahópum á Facebook. Ef þú hefur fleiri staði í huga þar sem þú telur að blaðið eigi að liggja, viljum við gjarnan heyra frá þér.
Viðburðadagatal
Ég er mikill talsmaður þess að viðburðir séu vel sýnilegir og teknir saman í góðu viðburðadagatali. Í þessu tölublaði er sú tilraun gerð að safna saman viðburðum á miðjuopnu blaðsins. Ég birti einungis þá viðburði sem þið í samfélaginu sendið mér, eða þá sem ég veit af og fæ leyfi til að birta. Að þessu sinni er dagatalið örugglega ekki tæmandi, þar sem ekki allir vita af þessu enn.
Við höldum áfram og prófum þetta aftur í næsta blaði. Ef þú veist um viðburð sem þú telur að eigi heima í dagatalinu, máttu endilega hafa samband.
Uppfært:
Frá því að þessi grein birtist hefur fyrirkomulagi dreifingar verið breytt. Með aðstoð sjálfboðaliða dreifum við nú í öll hús í Suðursveit, Nesjum, Mýrum og á Höfn.
Í Öræfum höfum við fengið góða aðstoð frá eigendum verslunarinnar í Freysnesi og Café Vatnajökuls á Fagurhólsmýri. Þar er hægt að sækja blaðið á hvorum stað fyrir sig.
Ef sjálfboðaliði vill taka að sér útburð í Öræfum væri það velkomið og mjög þakkarvert.




