Erna, Ragga, Kolbeinn, Guðlaug, Kristín, Sigga, Sólveig, Styrgerður, Andri  og Hildur. Þau fara öll með lykilhlutverk í leikritinu Gleðilega hátíð eftir Leikfélag Hornafjarðar í leikstjórn Birnu Jódísar Magnúsdóttur. 

Leikhúsferð er upplifun sem situr oft lengi eftir í huga áhorfenda og sýningar sem snerta mann gleymast seint. Í mars býður Leikfélag Hornafjarðar ykkur öll velkomin í leikhús í Mánagarði. Að fara í leikhús er ákveðið ferðalag, allt frá því að gengið er inn í salinn og þar til síðasti leikarinn hneigir sig á sviðinu og síðasti áhorfandinn gengur út úr salnum. Stundum er eins og tími standi í stað og leikritið er búið áður en maður veit af.

Auglýsing

Þetta er tími þar sem áhorfandinn fær tækifæri til að gleyma sér í leikverkinu og engar utanaðkomandi áhyggjur eða skyldur geta truflað.

Við hjá Leikfélagi Hornafjarðar höfum í mörg ár lagt okkur fram við að setja upp metnaðarfullar og skemmtilegar sýningar, bæði fyrir áhorfendur og okkur sjálf. Við sem störfum innan leikfélagsins vitum hversu mikilvægt það er fyrir menningarlífið í Hornafirði og hefur verið um árabil. Við viljum halda anda leikfélagsins á lofti eins lengi og hægt er og gera því góð skil.

Í ár er er hvergi slakað á metnaðinum og öllu tjaldað til. Verkið er hornfirsk í húð og hár. Við viljum bjóða ykkur upp á meiri hlátur og aukna gleði til að lengja líf ykkar og höfum samið farsa. Niðurstaðan er bráðfyndinn, skrítinn og fjörugur farsi sem ber nafnið „Gleðilega hátíð“. Sýningin er jafnframt sú hundraðasta frá stofnun Leikfélags Hornafjarðar árið 1962.

Handritið var skrifað af meðlimum leikfélagsins undir handleiðslu Arons Martins Ásgerðarsonar, sem hélt einnig vinnustofur í upphafi ferlisins og hefur svo verið okkur til stuðnings í gegnum æfingaferlið. Leikstjóri sýningarinnar er okkar eigin Birna Jódís Magnúsdóttir, sem hefur verið afar mikilvægur hluti af starfi leikfélagsins undanfarin ár. Það er einstaklega ánægjulegt að sjá hana stíga sín fyrstu skref í leikstjórn. Tónlistin í verkinu er svo samin af Þorkeli Ragnari og Björgu Catherine Blöndal og er heldur betur frumleg og skemmtileg.

„Gleðilega hátíð“ er því al hornfirskt verk. Það er mjög fyndið, örlítið krassandi, dálítið ögrandi en fyrst og fremst metnaðarfullt og fullt af þeirri ástríðu sem einkennir áhugaleikhús og Leikfélag Hornafjarðar. Við viljum taka fram að sýningin er ekki sérstaklega ætluð börnum, þó þau séu að sjálfsögðu velkomin í fylgd fullorðinna. Í verkinu koma fyrir sterk orð og nokkrar senur sem teljast fullorðinslegar, og treystum við foreldrum best til að meta hvað hentar þeirra börnum. Við svörum gjarnan spurningum í skilaboðum ef óskað er eftir frekari upplýsingum.

Við hlökkum gríðarlega til að taka á móti ykkur í leikhúsinu og leyfa ykkur að njóta afraksturs þeirrar vinnu sem staðið hefur yfir síðustu daga, vikur og mánuði. Það er mikil vinna að setja upp leiksýningu, og ótal atriði sem gerast á bak við tjöldin. Þar kemur saman stór hópur fólks, fullur af ástríðu og sameiginlegu markmiði: að skapa eftirminnilega upplifun fyrir áhorfendur. Leikhúsið verður nefnilega ekki til af sjálfu sér, heldur fyrir tilstuðlan þeirra sem mæta á æfingar kvöld eftir kvöld – ekki aðeins til að flytja texta á sviðinu, heldur einnig til að setja upp drapperingar, áhorfendapalla, raða stólum, útbúa leikskrá, sauma búninga og hanna leikmynd og leikmuni, svo fátt eitt sé nefnt.

Við erum ótrúlega þakklát fyrir þennan frábæra hóp sem stendur að baki Leikfélagi Hornafjarðar og allan þann stuðning sem við finnum alls staðar í samfélaginu. Pojpoj!

Sýningar eru allar klukkan 20:00 nema frumsýningin sem er klukkan 19:00

  • 1 sýning – 14. mars (Frumsýning)
  • 2 sýning – 15. mars
  • 3 sýning – 20. mars
  • 4. sýning 21. mars
  • 5. sýning 22. mars
  • 6. sýning 26. mars
  • 7. sýning 27. mars
  • 8. sýning 28. mars (Lokasýning)

Miðaverð er 4500 krónur. Hægt er að bóka miða með því að hringja í 691-6750 eða 892-9354. Svo tökum við að sjálfsögðu við bókunum í gegnum messenger.

Leikfélag Hornafjarðar

Tags: