
Eins og margir hafa tekið eftir hefur Olís á Höfn staðið í breytingum undanfarna mánuði. Þar sem áður var Lemon mini er nú komið fullbúið 66 Grill og gömul andlit hafa snúið aftur á vaktina.
Fyrir marga Hornfirðinga fylgir því ákveðin eftirvænting að sjá Gísla Má aftur við grillið, en hann á að baki farsæla sögu í veitingarekstri í bænum.
Nostalgía við grillið
Fyrir marga gesti vekur það upp skemmtilegar minningar að sjá Gísla Má, núverandi verslunarstjóra Olís, aftur í þessu hlutverki. Hann rak hér áður veitingastaðinn Ósinn, sem margir muna eftir fyrst í Shell-skálanum og síðar sem hluta af Hótel Höfn. Það eru því ákveðið afturhvarf til gamalla tíma að ganga inn á Olís og sjá hann aftur í essinu sínu.
„Það er virkilega gaman að vera farinn að flippa borgurum aftur,“ segir Gísli Már kátur.
„Ég er mjög ánægður með gæðin á hráefninu og samsetningin á réttunum er góð. Við finnum að fólk kann vel að meta fjölbreytileikann, ekki síst árstíðarbundnu borgarana sem bætast reglulega við“.
Bætt aðstaða
Samhliða breyttum matseðli stendur til að hressa upp á umhverfið innandyra. Markmiðið er að gera stöðina að stað þar sem fólk vill setjast niður og dvelja, frekar en að grípa bara bitann á ferðinni. „Við ætlum að gefa veitingaaðstöðunni meira rými og koma upp þægilegum setukrókum til að gera stöðina notalegri” útskýrir Gísli.
Aukin umsvif hafa einnig skilað sér í fjölgun starfsfólks, sem er fagnaðarefni fyrir bæjarfélagið. „Hornfirðingar hafa sennilega tekið eftir því að gömul og góð andlit eru farin að vinna aftur hjá okkur. Það er mikil gleði í hópnum og við erum virkilega þakklát fyrir það og okkar frábæru viðskiptavini“ segir Gísli að lokum.



