Reynir Ásgeirsson heiti ég og hef ég búið á Hornafirði óslitið öll mín 32 ár. Ég lauk stúdentsprófi frá Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu 2013, eftir það hóf ég uppbyggingu í ferðaþjónustu á Seljavöllum, Hornafirði og hef ég unnið í kringum það síðan samhliða annarri uppbyggingu á Hornafirði.
Stefna mín er skýr, ég vill stuðla að öflugu atvinnulífi þar sem að fyrirtæki sjá tækifæri í að fjárfesta og skapa störf á svæðinu. En öflugt atvinnulíf er undirstaða alls.
Ég brenn fyrir uppbyggingu Hornafjarðar og ég vill stuðla að uppbyggingu á öllum sviðum bæði hjá sveitarfélaginu sjálfu, fyrirtækjum og íbúum þess.
Einnig vil ég vill létta til með barnafjölskyldum, Hornafjörður á að vera besti staður á Íslandi til að eignast og ala upp börn.
En fyrst og fremst mun ég starfa fyrir íbúa á Hornafirði og mun stefna mín þróast og mótast næstu árin eftir þörfum þeirra hverju sinni.
Ég hef því ákveðið að bjóða mig fram í fyrsta sæti Sjálfstæðisflokksins á Hornafirði




