Ég hef notið þeirra forréttinda undanfarin 14 ár að koma á fót og starfa við eigið ferðaþjónustufyrirtæki. Þetta var ein lykilforsenda þess að ég, ásamt betri helmingnum, ákváðum að setjast að í heimabæ mínum, skjóta rótum í þessu öfluga samfélagi og sjá framtíðina fyrir okkur hér á Hornafirði. Undanfarin 11 ár hef ég komið að rekstri ferðaþjónustufyrirtækisins Glacier Trips, samhliða jökla- og íshellaleiðsögn. Sú reynsla hefur gefið mér dýrmæta innsýn í atvinnumál, sérstaklega ferðaþjónustu, og hversu mikilvægt er að þessi atvinnugrein fái að dafna hér á svæðinu.

Auglýsing

Atvinnulíf í þjóðgarðinum og hamlandi Náttúruverndarstofnun

Vatnajökulsþjóðgarður skiptir okkur Hornfirðinga sköpum. Atvinnumál, samfélagið og uppbygging sveitarfélagsins byggja á góðu og virku samstarfi þar á milli. Staðan er þó sú að nýlega var ráðinn framkvæmdastjóri sem við sáum lítið til nema rétt í hælana á henni, hvarf og framkvæmdastjórastaðan ekki lengur til. Þjóðgarðurinn virðist vera á sömu leið eftir að hann fór undir Náttúruverndarstofnun. Nú heyrist lítið í rödd sveitarfélagsins og lítur út fyrir að Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs sé orðið mállaus innan stofnunarinnar.

Ég vil beita mér fyrir sterkara samráði, meiri fyrirsjáanleika og sanngjörnum skilyrðum fyrir okkar atvinnu og tilvist innan þjóðgarðsins. Við verðum að fá aftur til baka það sem var stofnað í samráði við fólkið hér á svæðinu. Atvinnuuppbyggingin á heima í þjóðgarðinum, en mér sýnist forræðishyggja og sífellt nýtt regluverk geta ýtt henni hægt og rólega út og gert meðalstórum og smærri fyrirtækjum sérstaklega erfiðara fyrir. Það passar ekki að Vatnajökulsþjóðgarður sé undir Náttúruverndarstofnun; sú stofnun hefur annað meginhlutverk og atvinnuuppbygging er ekki í forgangi þar. Þetta er eitt stærsta atvinnumál sem við stöndum frammi fyrir núna, því útsvarstekjur gætu minnkað verulega ef fyrirtæki sem eiga rætur hér verða að engu.

Íþróttamál og börnin

Ég er með BSc í íþróttafræði og hef starfað mikið í kringum íþróttastarf á Hornafirði, meðal annars við þjálfun hjá UMF Sindra og kennslu í Grunnskóla Hornafjarðar. Ég starfaði einnig um tíma hjá velferðarsviði sveitarfélagsins og er stoltur af því að hafa tekið þátt í að koma hreyfingu eldri borgara í betri farveg. Íþróttir og tómstundir eru forvörn og lykill að líðan – en nú sjáum við að krökkum fer hlutfallslega fækkandi og færri stunda tvær íþróttagreinar. Þetta tengist oft því að kostnaðurinn er orðinn íþyngjandi: æfingagjöld, búnaður og ferðalög safnast saman og geta sett fjölskyldur í erfiða stöðu.

Með komandi áformum um nýtt íþróttahús og gervigrasvöll tel ég mikilvægt að íþrótta- og tómstundamál fái skýran forgang, þannig að ný mannvirki nýtist sem best og verði raunveruleg lyftistöng fyrir samfélagið. Ég hef mikla trú á góðu samstarfi í pólitíkinni og vil leggja mitt af mörkum til að börnin, samfélagið og atvinnumálin fái þann forgang sem þau eiga skilið. Ég sækist eftir stuðningi ykkar í prófkjörinu.

Sindri Ragnarsson

Tags: