Að búa í samfélagi eins og Sveitarfélaginu Hornafirði er gefandi því hvert okkar er svo mikilvægt fyrir samfélagið. Við höfum öll svo mikið fram að færa, sama hvers kyns við erum, aldur okkar og hver sem uppruni okkar er. Öll skiptum við máli.

Auglýsing

Ég hef alla tíð verið virkur í félagsstörfum, sungið í kórum, verið í stjórn ungmennafélags og pólitísku starfi. Dýrmæt reynsla sem maður á í reynslubankanum og miðlar svo áfram til annarra félaga. Að útdeila verkefnum er lykilatriði til að hópur virki sem best, hvort sem er á vinnustað eða í félagsstarfi.

Ég er eiginmaður, faðir og afi og þær stundir sem ég á með fjölskyldunni eru þær bestu í heimi. Ég er mikill náttúruunnandi og veit ekkert betra en að njóta þess að vera úti í íslenskri náttúru og sérstaklega í Lóninu. Ég hef alla tíð fylgst með fótbolta ásamt öðrum íþróttum. Að mínu mati er mikilvægt að börn og ungmenni hafi góðan aðgang að íþróttaiðkun, en  mikilvægt er að allir hafi aðgang að fjölbreyttri afþreyingu, sama á hvaða aldri við erum.

Aðgengismál fatlaðra ásamt þjónustu við fatlaða einstaklinga hafa alla tíð staðið hjarta mínu nær og ég er glaður að upplifa að við erum að standa okkur vel sem samfélag við okkar besta fólk. Það er loksins til bíll í eigu sveitarfélagsins til að þjónusta fólk í hjólastól. Einnig er ég spenntur fyrir endurnýjun húsnæðisins í Ekru.

Hagsmunir fyrir allt samfélagið eru mínar pólitísku áherslur, málefni fjölskyldna, sama á hvaða aldurskeiði, málefni fyrirtækjanna í sveitarfélaginu, viðhald og uppbygging innviða og eigna samfélagsins. Mikil hagsmunagæsla er framundan varðandi áframhaldandi uppbyggingu á vegum ríkisins og þar mun ég beita mér. Sama hvort það viðhald vega, fækkun einbreiðra brúa, endurnýjun hafnarmannvirkja, stuðningur við framhaldsskólann og áfram mætti telja.

Ég heiti Gauti Árnason og býð mig fram í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna þann 14. mars

Gauti Árnason

Tags: