Það er bæði ábyrgð og heiður að fá að vinna fyrir samfélagið sitt. Á undanförnum árum hef ég lagt mig alla fram við að sinna því hlutverki sem mér var treyst fyrir þegar niðurstöður síðustu sveitarstjórnarkosningar lágu fyrir. Starfsumhverfið er stundum flókið og krefjandi en það sem stendur uppúr er allt fólkið sem ég hef kynnst, óteljandi samtöl, ásamt þekkingu á allskonar málaflokkum sem ég tek með mér út í lífið. Hver hefði svo sem trúað því að mitt helsta áhugamál árið 2026 væri rusl? Ekki ég, þið fáið að heyra meira af því síðar.  Ég lít á þetta starf sem algjör forréttindi sem ég tek sannarlega ekki sem sjálfsögðu.

Auglýsing

Stjórnmál snúast í grunninn um samskipti. Það þarf að hlusta, vinna náið með ólíkum einstaklingum, byggja tengsl og þannig mynda sterka liðsheild sem vinnur saman að framtíð sveitarfélagsins, öll í sömu átt. Þetta samstarf hefur gengið virkilega vel á kjörtímabilinu, þvert á flokka. Ég hef myndað sterk tengsl við einstaklinga í sveitarstjórnum víða um land ásamt alþingismönnum úr ólíkum flokkum. Ég nýti mér óspart samtöl við þetta fólk til að viða að mér upplýsingum og fjölbreyttum sjónarmiðum, enda erum við oft að glíma við sambærileg verkefni.

Tækifærið til að hafa áhrif á hvaða fólk vinnur fyrir ykkur næstu árin er núna. Af einlægum áhuga sækist ég eftir áframhaldandi trausti til þess að starfa í bæjarstjórn. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins fer fram 14. mars þar sem ég sækist eftir 1. – 2. sæti.

Í lokin langar mig að minna þig á kæri lesandi hvað jákvæðni getur verið smitandi. Neikvæð orðræða sem oft eykst fyrir kosningar gagnast engum. Það er allsstaðar rými fyrir bætingar, en ég er sannfærð um það að allir séu að gera sitt besta á hverjum tíma hvort heldur sem er hjá sveitarfélaginu eða annarsstaðar. Tölum samfélagið okkar upp, verum stolt af því og styðjum náungann til góðra verka. Enginn getur allt, allir geta eitthvað. Saman gerum við mest.

Hjördís Edda Olgeirsdóttir
Formaður umhverfis- og skipulagsnefndar, bæjarfulltrúi og frambjóðandi.

Tags: