Geturðu sagt aðeins frá Horn brugghúsi?
Horn brugghús er handverksbrugghús á Höfn í Hornafirði. Við erum til húsa á Heppunni, nánar tiltekið að Heppuvegi 6. Horn Brugghús var opnað sumarið 2024 og höfum við verið að brugga síðan. Aðal markmiðið okkar er að brugga vandaðan og ferskan bjór með sterka tengingu við svæðið. Við leggjum mikið upp úr gæðum, stöðugleika og því að brugga bjóra sem fólk vill drekka aftur. Brugghúsið er hluti af stærri upplifun á Heppu, þar sem matur, drykkur og staðurinn sjálfur vinna saman að því að skapa skemmtilega upplifun fyrir gesti.
Hvernig tengist brugghúsið veitingastaðnum?
Brugghúsið og veitingastaðurinn á Heppu vinna mjög náið saman. Bjórarnir eru þróaðir með það í huga að passa með matnum sem við bjóðum upp á og maturinn gerður til þess að passa með bjórnum. Gestir fá þannig ferskan bjór beint úr brugghúsinu og þannig lyftum við upplifuninni á aðeins hærra plan. Þrátt fyrir það að parast sérstaklega vel með matnum á Heppu, standa bjórarnir okkar sannarlega fyrir sínu einir og sér hvort sem þeirra er notið á staðnum, uppá fjalli eða heima í stofu. Jafnframt hefur brugghúsið leyfi til smásölu beint frá framleiðslustað og er því hægt að kaupa bjórana með sér heim úr bjórbúðinni á Heppu sem er opin á sama tíma og veitingarstaðurinn. Við hvetjum þau sem eiga eftir að prófa að koma í heimsókn og kippa einum eða þremur ísköldum með sér heim!

Hvenær byrjaði brugghúsið starfsemi?
Horn brugghús hóf starfsemi í júní 2024, eftir töluverðan undirbúning, þar sem markmiðið var frá upphafi að byggja upp gæðabrugghús sem gæti staðið jafnfætis því besta sem gerist. Í dag erum við með 8 bjórtegundir í því sem við köllum kjarnaframleiðslu sem eru fáanlegir allt árið um kring. Einnig bruggum við árstíðarbundna bjóra í bland þess á milli
Þið hlutuð sex gullverðlaun á Untappd. Hvað þýðir það fyrir ykkur?
Það er gríðarlega ánægjulegt að fá slíka viðurkenningu, sérstaklega þar sem hún kemur beint frá neytendum. Þetta staðfestir að við erum á réttri leið og að bjórarnir okkar eru að hitta í mark. Fyrir lítið brugghús úti á landi er þetta líka mikil hvatning til að halda áfram og að gera enn betur.




Hvaða bjórar hlutu verðlaun?
Bjórarnir sem fengu verðlaun voru “The lobster” í flokknum Stout – “The local” í flokknum American light – “The Tank” í flokknum Session IPA – “Horn & Son” í flokknum Lager/Pale – “Raspberry” í flokknum Fruited Gose og “Oh Deer” í flokknum Vienna lager. Þess má til gamans geta að í fyrra fékk IPA-inn okkar “CodZilla” gullverðlaun í flokki IPA bjóra og því hafa allir kjarnabjórarnir okkar fengið gullverðlaun nema einn!
Hvað teljið þið að standi á bak við þennan árangur?
Við teljum að lykillinn sé sambland af metnaði, góðu hráefni, nákvæmni og stöðugleika í framleiðslu. Við erum líka stöðugt að smakka (það má þegar þú ert bruggari!), laga og betrumbæta. Svo skiptir miklu máli að hafa skýra sýn á hvað við viljum gera. Við erum ekki að reyna að gera allt, heldur gera það sem við gerum vel.
Hvað er framundan hjá ykkur?
Framundan er áframhaldandi þróun á bjórlínunni, nýir bjórar og tilraunir, ásamt því að styrkja tengslin við endursöluaðilana okkar. Við erum að bæta við nýjum bjórum í kjarnaframleiðsluna okkar núna á næstu vikum. Það verða allt heiðarlegir og auðdrekkanlegir bjórar sem henta flestum við flest tækifæri. Við erum líka að horfa í að dreifa bjórnum meira á svæðinu og gera hann aðgengilegri fyrir fleiri. Það er okkar upplifun að þeir gestir sem sækja Hornafjörð heim vilji kaupa local framleiðslu og eftirspurnin eftir bjórunum okkar hefur aukist jafnt og þétt. Við höfum hingað til ekki selt bjór frá okkur í ÁTVR, en það gæti breyst í vor. Annað sem er fyrirhugað í vor er að bjóða gestum og gangandi uppá skipulagða brugghústúra, þar sem stiklað verður á stóru í bjórsögunni og farið yfir hvernig bjór verður til. Túrinn endar síðan á bjórsmakki og spjalli við bruggarann.
Hver er sýn Horn brugghús, eru einhverjar pælingar á bakvið hvern bjór?
Sýnin er að byggja upp sterkt og trúverðugt brugghús sem stendur fyrir gleði, gæði og karakter. Á bak við hvern bjór eru ákveðnar hugmyndir. Stundum tengdar hráefnum, stundum stemningu og stundum einfaldlega að gera eitthvað áhugavert og skemmtilegt. Við viljum að hver bjór hafi sinn eigin karakter og að þegar þú drekkur hann, upplifir þú smá af stuðinu sem var hjá okkur þegar hann var búinn til.



