Í apríl munu fulltrúar frá Alzheimersamtökunum koma til Hafnar og halda fræðsluerindi fyrir íbúa og fagfólk. Markmiðið er að auka þekkingu og opna umræðu um heilabilun, sem snertir þúsundir Íslendinga og fjölskyldur þeirra.
Hvað er heilabilun?
Heilabilun er regnhlífarhugtak yfir rúmlega 200 sjúkdóma sem hafa áhrif á starfsemi heilans. Alzheimer er þar algengast, en einnig eru sjúkdómar á borð við Lewy Body, framheilabilun og æðatengd heilabilun. Áhrifin birtast meðal annars í skertu minni, breyttum skilningi og dómgreind, erfiðleikum í samskiptum og breytingum á hegðun.
Á Íslandi er talið að hátt í 6.000 einstaklingar lifi með heilabilun. Mikilvægt er að hafa í huga að heilabilun er ekki eðlilegur hluti öldrunar og ekki svokallaður öldrunarsjúkdómur. Fólk getur jafnvel greinst um fimmtugt.

Heimilislæknir fyrsti viðkomustaður
Fyrstu einkenni geta verið mismunandi eftir einstaklingum og sjúkdómstegundum. Þegar grunur vaknar er mikilvægt að leita til heimilislæknis, sem er fyrsti viðkomustaður í greiningarferlinu. Heimilislæknir getur metið einkenni, útilokað aðra sjúkdóma og vísað áfram í frekari rannsóknir ef þörf krefur.
Opnum umræðuna
Það skiptir sköpum að tala opinskátt um heilabilun. Að segja frá greiningu getur dregið úr kvíða og einangrun, bæði fyrir þann sem greinist og aðstandendur. Með aukinni umræðu getum við einnig unnið gegn fordómum og stuðlað að skilningsríkara samfélagi.
Þjónusta samtakanna
Alzheimersamtökin leggja sig fram við að vera til staðar fyrir einstaklinga með heilabilun og aðstandendur þeirra og bjóða upp á stuðning, ráðgjöf og fræðslu.
Reglulega eru haldnir stuðningsfundir fyrir aðstandendur, þar á meðal rafrænir fundir sem henta vel fólki á landsbyggðinni. Þá veita bæði sálfræðingur og ráðgjafi samtakanna viðtöl í gegnum fjarfund. Fræðsluerindi, sem við höldum reglulega, eru einnig aðgengileg á vefnum alzheimer.is.
Öflugt starf á Höfn
Á Höfn hafa Alzheimertenglar haldið úti öflugu og mikilvægu starfi undanfarin ár. Hér er meðal annars boðið upp á Alzheimerkaffi og aðstandendasamveru. Þá var svokölluð bekkjaganga haldin í fyrra í fyrsta sinn og stefnt er að því að endurtaka hana 6. júní næstkomandi.
Alzheimertenglar bæjarins eru Þorbjörg Helgadóttir, Ragnheiður Rafnsdóttir, Arna Ósk Harðardóttir, Anna Antonsdóttir og Lovísa Bylgja Kristjánsdóttir og eru samtökin þeim afar þakklát fyrir þeirra framlag.
Fræðsla í Nýheimum
Opið fræðsluerindi fyrir almenning verður haldið í Nýheimum þriðjudaginn 14. apríl kl. 17:00 og eru allir velkomnir. Þá verður sérstök fræðsla haldin fyrir fagfólk og starfsfólk sundlaugarinnar.
Erindin verða flutt af greinarhöfundi og Ástu Kristínu Guðmundsdóttur, ráðgjafa hjá Alzheimersamtökunum.




