Það er alltaf forvitnilegt, en á góðan hátt að heyra um lífshlaup fólks, því allir eiga sína sögu. Maður þarf ekki að vera stór og frægur og dreifa um sig fínum fjöðrum til að eiga sögu. Eina slíka eiga þau góðu hjón Þóra Hólm Jóhannsdóttir og Örn Eriksen, oftast kennd við Reynivelli í Suðursveit.  Þótt þeim hjónum finnist þau ekki hafa svosem neitt merkilegt fram að færa er ég ekki á sama máli, því þegar fólk hefur lifað vel fram á tíræðisaldurinn er margt og merkilegt í bakpokanum. Ég fékk því aðeins að kíkja í hann, því mér finnst hollt fyrir okkur sem yngri erum að kynnast lífsbaráttu þeirra sem  ræktuðu jörðina. Við nefnilega fundum ekki upp hjólið!

Auglýsing
Hjónin á góðum degi með Jökulsárlón í baksýn. Mynd: Sigurborg Jóna Björnsdóttir
Hjónin á góðum degi með Jökulsárlón í baksýn. Mynd: Sigurborg Jóna Björnsdóttir

Þóra Hólm er fædd og uppalin á Brunnum í Suðursveit 23.júní 1930  ein af þremur systkinum, Björn fórst með Helga SF 50 árið 1961, og  Gísli sem búsettur er á Höfn.  Örn er fæddur í Reykjavík 17.maí 1933 og er einn af þremur systkinum. Faðir Arnar var danskur, en foreldrar hans slitu samvistir þegar Örn var 9 ára. Mér lék forvitni á að vita hvers vegna Örn þá 10 ára gamall Reykjavíkursnáði lenti í Suðursveit. Fyrir tilstilli smíðakennara hans var hann fenginn sem sumarstrákur í Suðurhús í  Borgarhöfn, en í þá tíð tíðkaðist að börn færu í sveit. Móðir hans var ein með 3 börn og þetta var á stríðsárunum, 1943. Örn var sendur með Esjunni austur og var á annan sólarhring á leiðinni, með viðkomu í Vestmannaeyjum. Þar komu vertíðarmenn um borð eftir útiveru að heiman og voru kátir! Stráksi sat bara kyrr og lét sér vonandi fátt um finnast.  Ég tók hálfgerð andköf, 10 ára gutti sem spjaraði sig svona vel. Hann var hífður um borð í Björgvin og siglt í land með þá sem fóru ekki austar. Þaðan var svo farið út á Melatanga og keyrt vestur suðurfjörurnar með vörubíl sem gekk undir nafninu Langur. Það var eini vörubíllinn í Suðursveit. Seinna bættist annar við og þá var sá fyrri kallaður gamli Langur! Þetta var langt ferðalag fyrir lítinn gutta, sem endaði þó vel  í Borgarhöfn, en haft var að orði að ekki væri pilturinn nú  stór!

Samkennd var mikil í sveitinni og allir þekktust, líka Örn og Þóra. Skólaganga hjá Þóru var farskóli í Suðursveit og síðar fór hún á húsmæðraskóla á Varmalandi í Borgarfirði. Einnig var hún í einn vetur á Akureyri í vist sem kallað var.  Hvað Örn varðar kom hann í Suðursveit, gekk þar í skóla og fór í raun aldrei þaðan aftur nema í stuttan tíma í senn. Hugurinn leitaði alltaf austur, og svo í fyllingu tímans urðu þau hjón.  Örn og Þóra Hólm og byrjuðu sinn búskap á Reynivöllum árið 1952, með tvær hendur tómar, en bjartsýni og dugnað að vopni.  Fljótlega byrjuðu þau að byggja upp hægt og rólega. Ekki var tækninni fyrir að fara svona til að byrja með, og því mörg handtökin, en upp komst húsið og fluttu þau inn 1954 . Með árunum reistu þau og ráku mikið myndarbú, með blandaðan rekstur. Á þessum árum var lítið um að fólk væri að frílista sig frá bústörfunum, en hjónin fóru þó einu sinni í bændaferð og þá kom samstaða sveitunganna sér vel. Ingibjörg á Hala sá um að líta til með kúnum, og hafði hún þó ærinn starfa sjálf með stóra fjölskyldu. Þegar Þóra og Örn komu heim var kominn kvígukálfur, eigandanum Þóru til mikillar gleði, en hún var mikill dýravinur. Örn vann stundum meðfram búskapnum því þau vildu engum skulda, einnig voru þau með ýmsa garðræktun á tímabili. Árið 1962 verður margvísleg breyting á heimilslífi þeirra hjóna, því þá komu tveir drengir til sögunnar. Björn Gísli og Jóhann Karl. Báðir fæddir í ágúst á sama ári, 23 dagar á milli þeirra bræðra. Þeir voru 2ja og 3ja vikna gamlir þegar þeir komust í skjól á Reynivöllum. Sumum þætti kannski temmilegt að ættleiða eitt barn, en ekki Þóru og Erni. Þeir bræður ólust upp við gott atlæti, gengu í skóla og lifðu lífinu eins og strákar eiga að gera. Bjössi heillaðist snemma að fuglum en Jói var meira fyrir búskapinn. — Fín blanda.– Þessir tveir litlu drengir hittu beint í hjartastað á ömmu og afa á Brunnum, kannski hefur tilvist þeirra mildað söknuðinn eftir andlát Björns sonar þeirra.  Við 18 ára aldurinn fór að bera á veikindum hjá Jóhanni sem hann lifði með, stundum vel og stundum verr.  Hann lést svo í desember 2025 og var barnlaus. Björn er giftur og á 3 börn. Örn og Þóra eiga semsagt 3 barnabörn og 5 langafa og -ömmubörn.

Árið 1993 bregða Þóra og Örn búi og flytja á Höfn, en Jóhann vildi ekki færa sig um set þá, og Örn og Þóra voru á sumrin heima á Reynivöllum. Þar undu þau sér best, Þóra sá ásamt öðru um sumarhús Eimskips um tíma.  Þau fluttu svo alfarið á Höfn árið 2007 í Hlíðartúnið. Örn vann hin ýmsu störf, mikið við smíðar og Þóra var matráður um skeið í mjólkurstöðinni. Ég get með sanni sagt eftir spjall okkar að þau voru aldrei uppiskroppa með verkefni.  Þóra var mikil hannyrðakona og Örn verulega góður handverksmaður. Þau gengu í félag eldri borgara  þar sem hann var formaður um skeið,  byrjuðu í kór eldri borgara Gleðigjöfum haustið 1993 og syngur Örn þar enn. Þau hjón voru dugleg að ferðast þegar um hægðist á búskapnum og kunnu að njóta lífsins. Þegar húsið í Hlíðartúninu varð of erfitt fluttu þau í fallega íbúð í Ekru og áttu góðan tíma þar. Núna býr Þóra á Skjólgarði og var ein af þeim sem tóku skóflustungu að nýju hjúkrunarheimili!– Hafið kæra þökk fyrir spjallið og vináttuna þið heiðurshjón.

Greinarhöfundur
Guðlaug Hestnes

Tags: