- 18/12/2025
- ritstjórn
- 0
Fyrir hönd okkar hjá Bláa Lóninu og ferðaþjónustunni við Hoffell, vil ég senda Hornfirðingum allra bestu jólakveðjur og þakka fyrir ánægjulegt samstarf á árinu.
Við stóðum í nokkrum framkvæmdum við Hoffell á liðnu ári. Opnuðum við meðal annars nýjan baðstað við Hoffellsbæinn. Hafa viðtökur verið einstaklega góðar og sérstaklega meðal heimamanna.
Við hjá Bláa Lóninu vinnum nú að undirbúningi baðstaðar við Hoffellslón. Ákveðið var að fara með verkefnið í umhverfismat, en það opnar skipulagsferlið, eykur á gagnsæi og fleiri geta komið með hugmyndir eða athugasemdir.‘
Í fyrstu hugmyndum okkar var ætlunin að byggja gistingu og baðstað við Hoffellslón. Eftir blendin viðbrögð á íbúafundi á síðasta ári, höfum við ákveðið að vera ekki með gistingu við lónið, heldur færa gistinguna yfir á skógræktarsvæðið austan megin í Hoffellsfjalli.
Við munum leggja uppbyggðan heilsársveg inn að Hoffellslóni og þar með mun aðgengi allra að lóninu batna mikið. Baðstaðurinn sem reistur verður norðan megin í jökulöldunni, mun ekki vera sýnilegur þeim sem aka inn dalinn.
Baðstaðurinn mun einnig hýsa kaffihús og jöklasýningu sem byggð verður á safni Þrúðmars og Ingibjargar að Hoffelli. Þá höfum við óskað eftir samstarfi við þjóðgarðinn um móttöku gesta; skilti, lagningu göngustíga og aðra miðlun upplýsinga, rétt við jaðar þjóðgarðsins. Þannig eiga sem flestir að geta notið heimsóknar, hvort sem gestir eru komnir til að viðra hundinn sinn, fara á skauta, fá sér kaffibolla eða fara í bað.
Síðla árs 2026 stefnum við að því að sýna Hornfirðingum útlit byggingarinnar, en markmið okkar er að skapa mannvirki sem fellur vel að náttúrunni og sýni metnað í hönnun og umhverfisþáttum. Einungis er gert ráð fyrir að raska um 2% jökulöldunnar við Hoffell við framkvæmdina og að hluta er það svæði nú þegar raskað.
Stefnt er að því að 50-70 manns muni starfa við baðstaðinn en við horfum til þess að taka þátt í íbúðauppbyggingu á Höfn, svo tryggja megi húsnæði fyrir starfsmennina. Þannig viljum við vera virkir þátttakendur í samfélaginu enda er Höfn bæjarfélag í mikilli sókn og spennandi tímar eru framundan. Við hlökkum til að vera hluti af þeirri vegferð.
Með góðum kveðjum um ánægjulega jólahátíð og farsæld á nýju ári.
Magnús Orri Schram
Bláa Lóninu – Ferðaþjónustan að Hoffelli



