Um Eystrahorn
Eystrahorn er héraðsmiðill Hornfirðinga, á prenti og á vef.
Prentaða blaðið kemur út mánaðarlega, að jafnaði fyrsta fimmtudag í mánuði, og er dreift frítt inn á heimili í Sveitarfélaginu Hornafirði. Á vefnum birtist efni á milli tölublaða, svo hægt sé að koma fréttum, greinum, viðburðum og tilkynningum hraðar á framfæri.
Eystrahorn er vettvangur fyrir samfélagið okkar og birtir fyrst og fremst efni frá íbúum, félagasamtökum, fyrirtækjum og stofnunum í Hornafirði.
Hvernig getur þú tekið þátt?
Eystrahorn verður til með þátttöku samfélagsins. Þú getur sent inn efni í prentaða blaðið eða á vefinn, komið viðburði á framfæri, keypt auglýsingu eða stutt við útgáfuna með mánaðarlegu framlagi eða áskrift.
Efni og ábendingar sem eiga erindi við samfélagið í Hornafirði má senda á eystrahorn@eystrahorn.is.
Saga okkar og Eystrahorns
Eystrahorn kom fyrst út árið 1983 og hefur lengi verið hluti af samfélaginu í Hornafirði.
Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir og Tjörvi Óskarsson tóku við blaðinu árið 2017 af Alberti Eymundssyni, sem hafði þá verið ritstjóri þess um árabil. Tjörvi hafði áður komið að umbroti blaðsins og varð síðar ritstjóri þess. Sama ár var vefur Eystrahorns endurnýjaður og um leið var stigið skref í átt að virkari miðlun á netinu. Eftir erfið rekstrarár var útgáfu hætt í lok árs 2022. Arndís Lára Kolbrúnardóttir tók við rekstrinum í byrjun árs 2023 og gaf blaðið út það ár. Síðasta tölublað hennar var jólablaðið 2023 og í kjölfarið lagðist útgáfan niður. Í lok árs 2025 gáfu Guðrún og Tjörvi út sérstaka hátíðarútgáfu Eystrahorns. Viðbrögðin sýndu að blaðsins hafði verið saknað og í kjölfarið var ákveðið að hefja útgáfuna að nýju, með mánaðarlegu blaði og virkum vef þar sem hægt er að birta efni á milli tölublaða. Fyrsta tölublað ársins 2026 kom út 5. febrúar og nýr vefur Eystrahorns opnaði 7. maí sama ár.
Samfélagsmiðlar
Nýjustu blöðin
Teymið
Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir
Ritstjóri, auglýsingar og umsjón
Tjörvi Óskarsson
Umbrot og vefstjóri
Guðlaug Hestnes
Prófarkarlestur
Efni, ábendingar og auglýsingar má senda á:
eystrahorn@eystrahorn.is
