Hafnarkirkja fagnar í ár 60 ára vígsluafmæli og verður af því tilefni boðið til hátíðarmessu sunnudaginn 30. ágúst kl. 14:00.

Auglýsing

Óskar Hafsteinn Óskarsson prófastur mun prédika við messuna. Þá verður Hrafnkell organisti kvaddur, en hann heldur nú á vit nýrra ævintýra. Hrafnkell mun leika ljúfa tóna fyrir kirkjugesti frá kl. 13:30.

Að messu lokinni býður sóknarnefnd gestum til kaffisamsætis í Sindrabæ.

Öll eru hjartanlega velkomin.

Tags: