Ráðherra kynnir Hálendisþjóðgarð á fundum um allt land

0
952

ATHUGIÐ!
Vegna veðurs frestast fundur Umhverfis- og auðlindaráðherra, sem átti að halda á morgun á Hótel Skaftafelli í Öræfum.

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, fer á næstu dögum í hringferð um landið og kynnir áform um stofnun Hálendisþjóðgarðs, en frumvarp þar að lútandi er nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

Frumvarpið tekur til stofnunar þjóðgarðs á miðhálendi Íslands, á landsvæði sem er í sameign þjóðarinnar; þjóðlendum og friðlýstum svæðum innan miðhálendisins. Þetta er í samræmi við tillögur nefndar fulltrúa allra þingflokka og stjórnvalda, bæði ríkis og sveitarfélaga, sem vann að undirbúningi stofnunar þjóðgarðsins.

Á fundunum mun ráðherra m.a. fara yfir forsendur og markmið með stofnun Hálendisþjóðgarðs og kynna helstu atriði frumvarpsins.

Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:

Þriðjudagurinn 7. janúar

 13:30 BorgarnesHótel Hamar – FRESTAÐ vegna veðurs

 17:30 Húnavatnshreppur, Húnavallaskóli – FRESTAÐ vegna veðurs

Miðvikudagurinn 8. janúar

11:00 Reykjadalur, Félagsheimilið Breiðumýri – FRESTAÐ vegna veðurs

18:00 Egilsstaðir, Hótel Hérað – FRESTAÐ vegna veðurs

Fimmtudagurinn 9. janúar

13:00 Öræfi, Hótel Skaftafell í FreysnesiFRESTAÐ vegna veðurs

18:00 Hvolsvöllur, Midgard – FRESTAÐ vegna veðurs

Mánudagurinn 13. janúar

17:00 Reykjavík, Veröld – hús Vigdísar, fyrirlestrasalur. Fundurinn verður í beinu streymi á netinu.

Fundirnir eru öllum opnir – verið velkomin.

Nánar um drög að frumvarpi um Hálendisþjóðgarð

Spurt og svarað um Hálendisþjóðgarð

Frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð í samráðsgátt stjórnvalda