Jólatónleikar söngnemenda Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu til heiðurs Björgvini Halldórssyni.
Á þessu ári höfum við misst nokkra af dáðustu tónlistarmönnum Íslands. Magnús Eiríksson lést í janúar, Björgvin Halldórsson í apríl og Megas og Gunnar Þórðarson létust báðir í júlí. Þessir tónlistarmenn skilja eftir sig ógrynni af lögum og textum sem óma sterkt í þjóðarsálinni og við þurfum að varðveita.
Í lok vorannar 2026 héldum við stórtónleika í Sindrabæ til heiðurs Magnúsi Eiríkssyni, þar sem 30 söngvarar komu fram og sungu lög Magga ásamt hljómsveit kennara Tónskólans. Mæting fór fram úr okkar björtustu vonum og höfum við ákveðið að endurtaka leikinn. Að þessu sinni klæðum við okkur í jólabúninginn og ætlum að halda jólatónleika með svipuðu sniði. Á jólatónleikunum heiðrum við minningu Björgvins Halldórssonar og tökum lög sem hafa verið flutt á þekktu jólatónleikaseríunni hans, Jólagestir Björgvins. Í ljósi þess að nöfn okkar Björgvins eru ekki ósvipuð, þá fannst okkur tilvalið að kalla tónleikana Jólagestir Bjargar.
Hverju má svo búast við á þessum tónleikum? Yfir 30 söngnemendur á öllum aldri koma saman og syngja inn jólaandann ásamt hljómsveit kennara.


Jólagestir Bjargar verða haldnir fimmtudaginn 3. desember klukkan 17:30 í Sindrabæ. Frítt er inn á tónleikana og eru allir velkomnir, svo lengi sem pláss leyfir.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Björg tók viðtöl við nokkra söngnemendur:
Hvað er uppáhalds lagið þitt að syngja?
Erla María: Snæfinnur Snjókarl
Freyja Mey: Svona þúsund lög, ef ég á að velja eitt þá vel ég „One Last Time“ eða „No tears left to cry“ með Ariana Grande.
Tereza: Eitt lag sem við erum að æfa í söng, Geimferðalangur
Katla Eldey: Einskonar ást
Hvað er uppáhalds söngkonan/söngvarinn/hljómsveitin þín?
Erla María: Ég veit það ekki. Pabbi setur stundum á eitt lag sem er skemmtilegt en erfitt að segja (í ljós kom svo að þetta var hljómsveitin The Ruts).
Freyja Mey: Ariana Grande
Tereza: Magnús Eiríksson, því hann býr til mörg skemmtileg lög
Katla Eldey: Lana del Rey
Ætlar þú að fara í kór þegar þú verður eldri?
Erla María: Kannski, mig langar að prófa það
Freyja Mey: Ég veit það ekki alveg, örugglega ef við Erla yrðum í sama kór
Tereza: Ég veit það ekki
Katla Eldey: Ég er í kór, Samkór Hornafjarðar
Hvaða lag munt þú syngja á Jólagestum Bjargar?
Erla María: Snæfinnur Snjókarl og Svona eru jólin
Freyja Mey: Snæfinnur Snjókarl og Svona eru jólin
Tereza: Ég hlakka svo til og Svona eru jólin
Katla Eldey: Eitt sinn rétt fyrir jólin og Svona eru jólin
Hvað er uppáhalds textabrotið þitt úr laginu sem þú ætlar að syngja á tónleikunum?
Erla María: „Gekk í gömlum skóm“
Freyja Mey: „En galdrar voru geymdir“
Tereza: Uppáhaldið mitt er hvernig þau segja „Ég hlakka svo til“
Katla Eldey: „Stíga fætur stoltan dans á ströndu draumalands“
Spilar þú á eitthvað hljóðfæri, ef ekki hvaða hljóðfæri myndirðu vilja spila á?
Erla María: Já, þverflautu
Freyja Mey: Ég myndi vilja spila á hljómborð, ég verð bara að bíða þangað til það er laust að fara að æfa
Tereza: Gítar og bassa
Katla Eldey: Ég hef spilað á básúnu, ukulele og slagverkshljóðfæri í lúðrasveit, en ef ég mætti velja þá væri gaman að læra á fiðlu
Hvað er uppáhalds jólalagið þitt?
Erla María: Snjókorn falla
Freyja Mey: Jólasveinar ganga um gólf
Tereza: Úúú, góð spurning, öll!
Katla Eldey: Last Christmas með Wham
Í hvaða mánuði byrjar þú að hlusta á jólalög?
Erla María: Ég veit ekki hvort ég er byrjuð að hlusta á þau, en ég er allavega byrjuð að syngja þau, kannski þegar desember er kominn.
Freyja Mey: Ég veit það ekki, en ég er búin að hlusta á eitt lag sem er Snæfinnur Snjórkarl.
Tereza: Ég byrja alltaf að hlusta í nóvember eða desember, einhvers staðar þar á milli
Katla Eldey: Svona um miðjan nóvember.
Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn?
Erla María: Stúfur og svo er það Skyrgámur því hann kemur á afmælinu mínu.
Freyja Mey: Mér finnst bara allir, ég veit ekki hvort það skyldi vera Stekkjastaur eða Hurðaskellir
Tereza: Stúfur
Katla Eldey: Stúfur
Hvað er það besta við jólin?
Erla María: Að opna pakkana og fá eftirrétt, ís og kökur.
Freyja Mey: Að opna pakkana og fá eftirrétt og fá kjöt í staðinn fyrir að fá slátur
Tereza: Besta við jólin er að vera með fjölskyldunni sinni
Katla Eldey: Að eyða tíma með fjölskyldunni og enginn skóli






