
Ég flutti frá Bosníu til Hafnar með fjölskyldu minni þegar ég var fimm ára gömul. Síðustu 25 ár hef ég farið aftur heim á hverju ári, stundum oft á ári, og ferðast víða um Balkanskagann. Skaginn er ólíkur Íslandi á margan hátt en náttúrufegurð, rík menning og svæðisbundið hráefni í matargerð heilla ferðalanga við hvert fótmál.
Fyrir mér er Bosnía því ekki áfangastaður heldur hluti af minni menningu og sjálfsmynd, mitt annað heimili. Í gegnum árin hef ég ferðast mikið með íslenskum og alþjóðlegum vinum til Bosníu og nágrannalandanna og haft mikla ánægju af því að sýna þeim Balkanskagann, menninguna og staðina sem ég þekki svo vel sjálf. Því langar mig nú að bjóða Hornfirðingum, og öðrum áhugasömum í ferðalag um þetta einstaka svæði.
Eftir FAS fór ég til Reykjavíkur og lærði þar ferðamálafræði í HÍ. Ég hef einnig starfað á fjölbreyttum sviðum ferðaþjónustunnar, meðal annars við herbergisþrif, þjónustu, rekstur gistiheimilis, concierge-þjónustu, ferðaskipulag, sölu ferða og markaðsmál. Ég þekki því ferðaþjónustugreinina vel og frá fjölbreyttum sjónarhornum. Mér er því mikið í mun að skipuleggja ferðir mínar vel, þar sem gestir mínir fá að njóta alls hins besta á áhyggjulausu ferðalagi en uppgötva leyndar perlur og gestrisni heimamanna. Ég vil bjóða upp á ferðir þar sem fólk fær að kynnast Bosníu á persónulegan hátt.
Næsta hópferð Balkanferða er á dagskrá 26. maí til 9. júní 2027. Um er að ræða 15 daga ferð um Bosníu og Hersegóvínu og Króatíu þar sem menning, náttúra og afslöppun fara saman. Beint flug er í boði og ferðast á rútu um löndin. Á ferðalaginu er dvalið í eina til fjórar nætur á hverjum stað þar sem ýmist er boðið upp á skoðunarferðir, upplifanir eða frjálsan tíma, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. Ferðinni lýkur svo á rólegum dögum í Split við Adríahaf. Hámarksfjöldi í ferðina eru 20 manns. Til að tryggja gæði ferðarinnar og auðveld samskipti mun ég sjálf fylgja hópnum og leggja áherslu á að skapa góða og afslappaða stemningu.






Auk auglýstrar ferðar býð ég einnig upp á sérsniðnar einkaferðir, sérhannaðar út frá þínum óskum. Leitaðu til mín með hugmynd þína og við hönnum fullkomna ævintýraferð fyrir þig og þinn hóp. Boðið er uppá ferðir með eða án leiðsagnar minnar.
Ég hlakka til að taka á móti þér og sýna þér Balkanskaga heimamanna.
Á heimasíðu Balkanferða, www.balkantravel.is, má finna nánari upplýsingar um ferðir, dagskrá og verð. Einnig er hægt að fylgjast með Balkanferðum á Facebook og Instagram eða hafa samband við mig beint í síma 894 5665 eða á balkanferdir@gmail.com.



