Hótel Höfn í byggingu 1966

Í dag, 1. október 2026, eru sextíu ár frá því að Hótel Höfn tók til starfa. Vorið 1965, nánar tiltekið á þjóðhátíðardegi Norðmanna 17. maí, hófust byggingaframkvæmdir og rúmu ári

Auglýsing

síðar, 1. október 1966 var fyrsti áfanginn tekinn í notkun. Það var bygging með veitingasal og eldhúsi á efri hæð en gestamóttöku, geymslum og starfsmannaaðstöðu á neðri hæð. Annar áfangi, 20 herbergja álma á þremur hæðum, var tilbúinn 17. júní 1967 og fjórum árum síðar lauk byggingu hótelsins þegar önnur 20 herbergi bættust við.

Stofnendur og eigendur hótelsins voru tvenn hjón; Árni Stefánsson og Svava Sverrisdóttir og Þórhallur Dan Kristjánsson og Ólöf Sverrisdóttir. Þórhallur lést árið 1975 en hefði orðið 100 ára í dag, 1. október. Árni lést 2008 en hefði orðið 100 ára 10. júlí á næsta ári. Ólöf varð 99 ára 15. september síðastliðinn og Svava systir hennar varð 93 ára 30. janúar. Auk hjónanna  tveggja var þriðja systirin, Ingibjörg Sverrisdóttir einn af máttarstólpum rekstursins frá upphafi. Hún bjó í Reykjavík og vann lengst af sem sjúkraliði á Landspítalanum en kom alla tíð austur á Hornafjörð í sumarfríum og lét þá til sín taka við reksturinn. Ingibjörg lést 2018.

Þjónustustúlkur í sal, frá vinstri: Guðrún Þorsteinsdóttir, Olga Þórhallsdóttir, Ingibjörg Gísladóttir, Sigurbjörg Karlsdóttir, Helga Sigurðardóttir, Helga Karlsdóttir og Hallbjörn Þórarinsson yfirkokkur. Myndin er tekin á upphafsárum hótelsins

Aðdraganda þess að hótelið var byggt má meðal annars rekja til þess að haustið 1959 tóku Árni og Þórhallur að sér rekstur á Hótel Skálholti, þar sem nú er gistiheimilið Hvammur, með samkomulagi við Kaupfélag Austur-Skaftfellinga, eiganda hússins. Innan fárra ára var húsnæðið orðið of lítið til þess að hægt væri að sinna vel þeim fjölda gesta sem komu til Hornafjarðar árlega. Þeir félagarnir fengu því úthlutað lóð hjá hreppnum til byggingar nýs hótels 1964 og hófust handa við undirbúninginn. Lóðin var í ræktunarlandi Sigurbjargar Gísladóttur tengdamóður þeirra en Hafnarkirkja er einnig byggð á skika úr sama landi. Frá upphafi var ákveðið að hafa hótelið hið glæsilegasta og standast nútíma kröfur vaxandi fjölda ferðafólks. Dr. Maggi Jónsson var ráðinn arkitekt hússins og Þorgeir Kristjánsson, bróðir Þórhalls, var byggingameistari þess.

Starfsemi hótelsins óx jafnt og þétt. Auk veitinga- og gistiþjónustu stóð hótelið um árabil fyrir skoðunarferðum að Fláajökli, út á Stokksnes og alla leið í Skaftafell. Til voru þrjár rútur til þeirra ferða og einnig rak hóteið bílaleigu um hríð. Áður en hringvegurinn var kláraður 1974 buðu ýmsar ferðaskrifstofur upp á hringferðir fyrir erlent ferðafólk og var lagt af stað frá Reykjavík en endastöðin var á Höfn. Eftir tveggja daga dvöl þar var flogið með hópinn til Reykjavíkur þaðan sem nýr hópur kom einnig til þess að fara með rútunum til baka austur og norður um land til borgarinnar. Við opnun hringvegarins jukust þessar hringferðir til muna.

Systurnar (frá vinstri) Ólöf, Ingibjörg og Svava Sverrisdætur

Margir einstaklingar, jafnt heimafólk sem aðkomufólk, lagði hótelrekstrinum lið með vinnuafli sínu allt frá upphafi. Þá var ómetanlegt hve vel íbúar Hornafjarðar tóku hótelinu og nýttu sér þjónustu þess. Þessu öllu fólki eru Ólöf og Svava ævinlega þakklátar í dag. Eftir rúmlega 30 ára uppbyggingu og rekstur tóku nýir aðilar við keflinu á Hótel Höfn árið 1996 og frumkvöðlarnir drógu sig í hlé. Þær systur færa núverandi eigendum og starfsfólki hótelsins hamingjuóskir með 60 ára afmæli Hótels Hafnar og óska þeim velfarnaðar um ókomin ár.

Við samantektina er stuðst við Sögu Hafnar II. bindi eftir Arnþór Gunnarsson.

Gísli Sverrir Árnason

Tags: