Þegar hugmynd verður til þá er ekki víst að hún verði að veruleika, en sumar hugmyndir eru einfaldlega of góðar til að láta þær framhjá sér fara. Nýr kór er að líta dagsins ljós á haustdögum sem einblínir á tónlist og samheldni. Kórastarfið í sveitarfélaginu er nú þegar mjög metnaðarfullt og við hlökkum til að vera með í því.

Auglýsing

Af hverju Kórall?

Vantar fleiri kóra í Hornafjörð? Mögulega ekki, en við ákváðum samt að stofna einn slíkan. Kórinn Kórall er opinn öllum kynjum, viljum við sérstaklega ná til yngra fólks og um leið skapa hóp þar sem ólíkir aldurshópar mætast og syngja saman. Markmiðið er því ekki að búa til kór fyrir einn aldurshóp umfram annan, heldur fjölbreyttan hóp þar sem ungt fólk getur líka fundið sinn stað. Kórinn er ætlaður öllum frá 16 ára aldri. 

Við viljum að Kórall sé sterkur félagslegur vettvangur, en tónlistin verður alltaf í forgrunni í öllu starfinu. Við ætlum að vinna markvisst með raddir og samhljóm og byggja upp metnaðarfullan kór. Til þess að búa til metnaðarfullan kór þá er mikilvægt að kórmeðlimum líði vel saman og að það myndist góður og samheldinn hópur.

Kórall á líka að vera opinn vettvangur fyrir fólk sem er nýtt í samfélaginu. Við viljum sérstaklega bjóða íbúum af erlendum uppruna og þau sem eru nýflutt til Hornafjarðar velkomin. Ætlunin er að syngja bæði á íslensku og ensku og vonandi getur kórinn orðið ein leið til að kynnast nýju fólki og verða hluti af samfélaginu.

Ný tónlist og nýjar útsetningar

Tónlistin verður í hjarta starfsins og okkur langar að skapa Kóral ákveðna sérstöðu. Við viljum velja fjölbreytt og skemmtileg lög og leggja áherslu á vandaðan flutning og metnaðarfullar útsetningar.

Eitt af því sem okkur þykir sérstaklega spennandi er að fá ungt hornfirskt tónlistarfólk til liðs við okkur við að útsetja tónlist sérstaklega fyrir kórinn. Þannig verður Kórall líka vettvangur fyrir tónlistarsköpun og samstarf við tónlistarfólk hér í Hornafirði. Nemendum sem stunda nám við Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu gefst færi á að fá kórastarfið metið til eininga. 

Við vonumst jafnframt til þess að kórinn geti með tímanum tekið þátt í fjölbreyttum viðburðum, staðið fyrir eigin tónleikum og verkefnum og þannig lagt sitt af mörkum til öflugs og fjölbreytts menningarlífs í Hornafirði.

Frá vinstri Björg, Birna, Sigrún og Stefanía

Vertu með!

Það sem er kannski mest spennandi við Kóral er að kórinn er enn í mótun. Það er gríðarlega spennandi tækifæri að fá að taka þátt í að móta kórinn frá grunni og við viljum bjóða ykkur að vera með. Þetta er nýtt verkefni og við ætlum að leyfa því að þróast, en við erum með skýrt markmiðið: að byggja upp metnaðarfullan, fjölbreyttan og góðan kór sem getur orðið hluti af öflugu tónlistar- og menningarlífi Hornafjarðar.

Stefnt er að því að æfa einu sinni í viku og verða einnig raddæfingar aðra hverja viku til að byrja með. Þannig gefst tækifæri til að vinna bæði með kórinn sem heild og raddirnar innan hans.

Fyrsta æfing og kynning verður fimmtudaginn 17. september kl. 20:00 í Sindrabæ. Þar verður hugmyndin að Kóral verði kynnt betur, við syngjum okkar fyrsta lag saman og tökum raddprufur.

Kórall er rétt að byrja að taka á sig mynd og nú vantar okkur raddirnar sem eiga eftir að móta hann. Við hlökkum til að hitta ykkur!

Ef þú hefur einhverjar spurningar þá er velkomið að hafa samband við okkur í gegnum korinnkorall@gmail.com eða senda okkur skilaboð á Messenger.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Söngkveðjur,
Birna Jódís Magnúsdóttir
Björg Catherine Blöndal
Sigrún Birna Steinarsdóttir
Stefanía Dröfn Vopnfjörð Ingólfsdóttir

Tags: