
Allt um kringum Höfn er að finna leirur sem standa upp úr sjó á fjöru. Þó þær virðast líflausar við fyrstu sýn er fjölda smádýra að finna undir yfirborðinu. Þessi smádýr gera leirur að mikilvægu fæðusvæði fugla og fiska. Leirur eru þannig grunnstoð fæðukeðjunnar og mikilvægar fyrir lífríkið í heild sinni, bæði til lands og sjávar.
Síðastliðnar vikur hafa sérfræðingar Náttúrustofu Suðausturlands unnið að rannsókn á smádýralífi í leirunum í Skarðsfirði. Þá eru lagðir út rannsóknarreitir, þekja gróðurs og pípuorma skráð og sandmaðkshraukar taldir. Einnig eru tekin sýni úr setinu í hverjum reit og smádýr sigtuð úr þeim. Þau eru svo greind í víðsjá, en það er einskonar smásjá. Smádýrin eru greind til tegunda ættar, ættkvíslar eða fylkingar.



Tilgangurinn er að fá yfirlit á lífríki svæðanna sem er síðan mikilvægur þáttur þess að meta líffræðilega fjölbreytni og stöðugleika vistkerfisins í kringum Höfn. Síðast var smádýralíf í Skarðsfirði metið árið 1979 með sambærilegum aðferðum. Með því að bera gögnin sem nú er aflað við gögnin frá 1979 má meta hvort og hvaða breytingar hafi orðið á lífríki Skarðsfjarðar og jafnvel rekja hvort breytingin sé afleiðing mannlegra inngripa eða náttúrulegs landriss.
Náttúrustofan leitar eftir aðstoð heimamanna með verkefnið. Við óskum eftir ljósmyndum af Skarðsfirði á fjöru, sem voru teknar á árunum 1970-1990. Slíkar myndir hjálpa til að öðlast betri sýn í ástand svæðisins á þessum tíma og framvindu leira í Skarðsfirði síðan þá. Myndir má senda á netfangið hoffy@nattsa.is eða koma með þær á skrifstofur starfsmanna á vesturgangi neðri hæðar í Nýheimum.



