
Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram laugardaginn 29. ágúst 2026. Þar verður spurt hvort Ísland eigi að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið og verða svarkostirnir já og nei. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er ráðgefandi.
Kjörstaðir í Hornafirði á kjördag
Kjörfundir í Sveitarfélaginu Hornafirði verða á þremur stöðum:
- Öræfi – Hofgarður: kl. 10:00–18:00
- Suðursveit – Hrollaugsstaðir: kl. 10:00–18:00
- Höfn – Heppuskóli: kl. 9:00–19:00
Athygli er vakin á að kjördeildir í Holti og Heppuskóla hafa verið sameinaðar og kjósendur með lögheimili á Mýrum greiða því atkvæði í Heppuskóla á Höfn. Kjósendur geta átt von á að verða krafðir um skilríki á kjörstað.
Kosning utan kjörfundar
Þeir sem ekki geta kosið á kjördag geta greitt atkvæði utan kjörfundar. Á Litlubrú 1 á Höfn verður opið:
- 24.–27. ágúst kl. 9:00–17:00
- 28. ágúst kl. 9:00–18:00
- á kjördag, 29. ágúst, kl. 10:00–12:00
Einnig er hægt að kjósa utan kjörfundar á heimili Pálínu Þorsteinsdóttur að Svínafelli 1 Suðurbæ í Öræfum, eftir samkomulagi í síma 478 1760 eða 894 1765. Sjá nánari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu á vef sýslumanns.
Kjósendur þurfa að framvísa persónuskilríkjum við kosningu utan kjörfundar. Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna, kjörskrá og kjörstaði má finna á kosning.is og island.is.


