Ég átti því láni að fagna að fá pláss á humarbát flest mín táningssumur – og átti því margar góðar stundir út af suðurströndinni, og þá ekki síst Hornafirði. Aldrei nýttum við humarinn til matseldar um borð, og má mörgum það einkennilegt virðast.
Humarréttum og -súpu kynntumst við Helga fyrst þegar við fluttum til Hafnar árið 1983. Þá voru dýrleg ár framundan, raunar að öllu leyti.
Við fórum að prófa okkur áfram í humarsúpugerð – og í áranna rás höfum við þróað það sem okkur finnst besta humarsúpa heims, hvorki meira né minna!


Galdurinn er að láta humarinn njóta sín og forðast sterk krydd. Aldrei höfum við mælt nákvæmlega.
Við skelflettum humarinn og eigum stundum humarskeljar í frysti til viðbótar. Eftir að hafa brotið þær rækilega steikjum við þær í smjöri (ekki spara það um of), söltum og sjóðum í vatni í góðan tíma, þannig að við náum örugglega kraftinum úr.
Þá gerum við hefðbundna smjörbollu, sem sagt slatti af hveiti og smjöri. Soðið er síðan hrært saman við bolluna í smá slöttum. Hendi einum fiskteningi út í, eða tveimur. Hvítvíni bætt við, allt eftir því hvað maður tímir. Slettu af koníaki, ef ekki er búið að klára það.
Þá smá tómatsósa – gerir líka gott fyrir útlitið. Örlítið af Ceyanne pipar – fara varlega! Salta og pipra eftir smekk.
Og svo rjómi – eiga örugglega nóg af honum, en passa að humarinn fái að njóta sín.
Hitað þar til suðan kemur upp. Slökkva á hellunni og demba skelflettum humrinum út í.
Tilbúið með góðu heimabökuðu brauði.
Uppskrift að heimbökuðu brauði Helgu
- 4 dl ylvolgt vatn
- 1 tsk salt
- 5 tsk þurrger
- 2-4 msk matarolía (má sleppa)
- 2-3 msk hunang / sykur (má sleppa)
- hveiti eftir þörfum (ekki of mikið)
Öllu nema hveiti og olíu blandað saman. Hveiti sett smátt og smátt saman við og allt
hnoðað í hrærivél. Olían sett út í undir lokin. Hnoðað þangað til deigið festist ekki við
fingurna. Skipt í 16-24 jafna hluta og formað í bollur. Látið lyfta sér undir rökum klút um
sirka helming. Bakað ofarlega við 200° þar til fallega gyllt.
Einnig má vefja deiginu utan um grillpinna, eða forma í litlar flatbökur og baka á grilli. Sett
beint á grillið og snúið öðru hvoru. Grillað þar til fallega gyllt.





