
Þórbergssetur hefur nú starfað í 20 ár þann 1. júlí næstkomandi. Stór og mikil opnunarhátíð var haldin 30. júní 2006. Þannig týnist tíminn í kringum okkur og flýgur áfram, og ef litið er til baka er margt að rifja upp og fjöldi viðburða og atburða sem einkennt hafa starfsemina undanfarin 20 ár. Þar bera hæst ótal málþing, listviðburðir, sýningar og gönguferðir þar sem andi Þórbergs hefur svifið yfir, en einnig hefur Þórbergssetur veitt styrki til menningarmála svo sem bókaútgáfu sem tengist héraðinu, til listsköpunar, kvikmyndagerðar og stutt við menningarstarf hér heima fyrir.
Í tilefni afmælisins verður starfsemin blómleg þetta ár. Segja má að Jón Hjartarson leikari hafi riðið á vaðið með stórkostlegum einleik sínum úr Sálminum um blómið í febrúarmánuði. Sú kvöldstund var að mínu mati hápunktur starfseminnar hér í Þórbergssetri síðastliðin 20 ár. Veglegt málþing var síðan haldið í lok marsmánaðar, samstarf við Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu hófst eftir áramótin, fjarnám tengt verkum Þórbergs Þórðarsonar var vel sótt og fjölmenn bridgehátíð var að vanda í apríl.
Gísli Sverrir Árnason hefur frá því um áramót unnið að skráningu allra muna í Þórbergssetri í safnaforritið Sarp, með aðstoð Björns Gísla Arnarsonar myndatökumanns, einnig skráningu bókasafns og gjafa sem borist hafa til Þórbergsseturs í öll þessi ár. Það er víða sem Þórbergur og verk hans koma fram og ævinlega fylgir góður hugur og skemmtileg kynni og frásagnir frá þeim sem koma í Þórbergssetur færandi hendi og gjarnan með ólíkar gjafir til varðveislu. Það kallar aftur á móti á skyldur okkar að standa vel að skráningu og varðveislu muna – oft er um mikil menningarleg verðmæti að ræða og einlægar tilfinningar sem fylgja afhendingu en jafnframt ánægja viðkomandi gefenda að geta lagt eitthvað af mörkum til minningar um þau Þórberg og Margréti eiginkonu hans.
Í sumar verða settar upp tvær nýjar sýningar í Þórbergssetri. Listasafn A.S.Í. bauðst til að lána í tilefni 20 ára afmælisins nokkur málverk frægra listamanna úr listaverkasafni Þórbergs og Margrétar sem þau hjónin ánöfnuðu Listasafni alþýðu á sínum tíma. Það verða því breytingar á Hringbrautinni og Umskiptingastofan fær tímabundið á sig svip myndlistar í bland við bókmenntaarfinn. Einnig verður sett upp ljósmyndasýning í Eystri sal með jöklalistaverkum sem Þorvarður Árnason lét birtast í linsuopi myndavélar sinnar síðustu 20 árin á samfelldu flakki um jöklalandslag sýslunnar. Á sýningu hans verða aðallega myndir frá Breiðamerkursandi og jöklaupplifun hans þar.
Þórbergssetur, í samvinnu við Vatnajökulsþjóðgarð og Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Hornafirði, stóð að gerð stuttmyndar um eyðijörðina Fell, sýndarveruleiki þar sem birtist saga stórbýlis og sýslumannsseturs um aldamótin 1700. Býlið Fell eyddist í miklu jökulflóði (1868) á sjöunda áratug nítjándu aldar og búseta lagðist niður á jörðinni endanlega 1873. Myndin verður til sýnis í Þórbergssetri í sumar og minnir okkur á sambúð manna og jökuls fyrr á öldum. Í landslaginu undir Fellsfjalli má sjá minjar liðins tíma, höfuðbólið Fell „draumakastala fátæks fólks” sem minnir á einn af merkustu sögustöðum Austur-Skaftafellssýslu.
Það er því alltaf ástæða til að kíkja við í Þórbergssetri og sjá eitthvað nýtt á menningarsviðinu. María Sjöfn listakona verður starfandi í júlímánuði við leiðsögn um sýningarnar. Hún tekur vel á móti fólki og er með lifandi leiðsögn um staðinn ef óskað er eftir.
Davíð Birgisson, ungur háskólanemi í málvísindum, hefur setið við síðustu vikurnar að skrá Esperantóbókasafn Íslands sem telur þúsundir bóka, bæklinga og tímarita og barst til varðveislu í Þórbergssetur fyrir tveimur árum. Bókasafnið skreytir vesturvegg Eystri salar í Þórbergssetri í fallegum sérsmíðuðum bókaskápum í stíl við bókaskápa Þórbergs.
Esperantósamband Íslands veitti styrk í þetta verkefni og ánafnaði Þórbergssetri safnið til varðveislu. Segja má að misjafnt hafist menn að í sveitum landsins, en tungumálið esperantó er alþjóðamál sem ruddi sér til rúms í veröldinni eftir aldamótin 1900. Með esperantó opnuðust Þórbergi hulduheimar heimsbókmenntanna og merkilegir menningarstraumar bárust til Íslands á árunum fyrir heimsstyrjöldina síðari með innleiðingu þess.
Tónleikar í samstarfi við Kálfafellsstaðarkirkju verða að kvöldi 29. júlí á Ólafsmessu og nú mætir Bjartmar Guðlaugsson hress að vanda og verður með okkur þessa kvöldstund, auk þess sem gengið verður að Völvuleiðinu undir Hellaklettum ef veður leyfir.
Stórt og mikið afmælisþing verður síðan haldið 25. október í Þórbergssetri. Þar verður m.a. frumflutt kvikmynd þar sem eru viðtöl við fjóra merka Íslendinga um Þórberg og tengsl þeirra við hann og Margréti konu hans. Efni þetta hefur ekki birst áður en það eru þau Guðbjörg Steindórsdóttir, dóttir Þórbergs, Vilborg Dagbjartsdóttir skáld, Pétur Pétursson þulur og Haraldur Ólafsson mannfræðingur sem fjalla um kynni sín af þeim hjónum. Myndin er sett saman af þeim Hjálmari Heiðdal og Pétri Gunnarssyni rithöfundi, en kvikmyndirnar tók Dagur Kári Pétursson árið 2005.
Starf forstöðumanns Þórbergsseturs er nú laust frá og með 1. janúar 2027. Nú, að 20 árum liðnum, verður gaman að fá nýjar og ferskar hugmyndir að starfinu – mestu máli skiptir þó að starfsemi Þórbergsseturs sé tryggð til framtíðar.
Þórbergssetur er sjálfseignarstofnun með sérstakri stjórn og skipulagsskrá og starfar sjálfstætt í samvinnu við Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Háskóla Íslands og Rithöfundasamband Íslands. Það er mikilvægt í síbreytilegu og fjölþjóðlegu samfélagi nútímans að halda á lofti menningarverðmætum okkar sem þjóðar. Þar eru án nokkurs vafa bókmenntir og sagnalist ofarlega ef ekki efst á lista. Við þurfum því umfram allt að halda áfram að segja sögur frá liðinni tíð og viðhalda þekkingu forfeðranna á náttúru, sögu og nánasta umhverfi, en jafnframt að færa þær í nútíma form til varðveislu fyrir komandi kynslóðir.
Nýjar heimabakaðar tertur verða með kaffinu í sumar og ýmislegt góðgæti á boðstólum auk hefðbundins íslensks matseðils
Allir velkomnir að koma við í Þórbergssetri – Þórbergur er alltaf nýr




